Umsóknarfrestur: Byggðaþróun - styrkir til meistaranema
Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Kostur er ef verkefnin hafa skírskotun til byggðaáætlunar. Til úthlutunar eru allt að 1.200.000 kr. og stefnt er að því að veita allt að fjóra styrki. Í umsókn skal koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það styður við byggðaþróun. Umsækjendur þurfa að stunda meistaranám við viðurkenndan háskóla.
Sjá nánar:
Við mat á umsóknum er litið til eftirfarandi þátta:
- Tengsl verkefnis við markmið byggðaáætlunar
- Nýnæmi verkefnis
- Möguleikar á hagnýtingu
- Gæði umsóknar (skýr markmið, vönduð rannsóknaráætlun og hnitmiðaður texti)
Fyrir úthlutanir:
- Byggðastofnun hefur frá árinu 2015 veitt styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar.
- Á heimasíðu stofnunarinnar má sjá yfirlit verkefna sem hafa verið styrkt.
Nánari upplýsingar:
- Veitir Hanna Dóra Björnsdóttir.
- Netfang hannadora@byggdastofnun.is
- Sími: 455 5454
Umsóknarfrestur er til miðnættis 10. nóvember 2025.