Fara í efni
Umsóknarfrestur: Þróunarsjóður námsgagna

Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum í Þróunarsjóð námsgagna og Sprotasjóð.

Sótt er um styrkina hjá Rannís sem annast umsýslu sjóðanna fyrir hönd ráðuneytisins. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2024 kl. 15.00.

Þróunarsjóður námsgagna

Hlutverk Þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.

Við úthlutun verður tekið tillit til hvort námsefnið styðji við grunnþætti menntunar og hversu aðgengilegt það verður nemendum.

Áherslur sjóðsins árið 2024:

  1. Námsefni ætlað börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn vegna tungumálakennslu.
  2. Námsefni sem styður við stærðfræði og náttúrugreinar.
  3. Námsefni sem miðar að markvissri eflingu íslensks orðaforða og hugtakaskilnings í ýmsum námsgreinum.

Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á. Hægt er að sækja um almennan þróunarstyrk fyrir allt að 2 m.kr. en einnig um þróunar- og útgáfustyrk fyrir allt að 4 m.kr. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að veita að hámarki tveimur umsóknum þennan hámarksstyrk, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Árið 2023 veitti Þróunarsjóður námsgagna 78,5 milljónum króna til alls 35 verkefna, hér má finna yfirlit yfir þau verkefni sem hlutu styrk

Finnst þér flókið að skrifa styrkumsókn? Smelltu hér ef þú vilt aðstoð. 

Umsóknarfrestur: Þróunarsjóður námsgagna