Fara í efni
Umsóknarfrestur: Hvati

Menningar- og viðskiptaráðuneytið veitir Hvata - styrki til verkefna á málefnasviðum menningar- og viðskiptaráðherra. Ráðuneytið auglýsir nú bæði eftir umsóknum vegna seinni úthlutunar ársins 2023 og fyrri úthlutunar ársins 2024.

Styrkjum skal úthlutað til ákveðinna verkefna á vegum félaga og samtaka til eins árs í senn.

Verkefnin skulu ekki njóta lögbundins stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga á vegum ráðuneytisins. Þá eru hvorki veittir styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS-, eða meistaraprófsverkefna.

Næstu styrkveitingar fara fram í október 2023 annars vegar og snemma árs 2024 hins vegar. Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en 28. september nk. til að verða teknar til greina.

Samkvæmt úthlutunarreglum mun matshópur skipaður af ráðherra meta umsóknir en horft verður til ýmissa þátta við úthlutunina, m.a. hvort verkefnin þyki hafa gildi og mikilvægi fyrir stefnu viðkomandi málaflokks, og hvort markmið og árangursmælikvarðar séu skýrir. Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið má finna í úthlutunarreglum.

Eftirtalin gögn skulu fylgja umsókn eftir því sem við á:

  • upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur, aðra þátttakendur og samstarfsaðila, ef einhverjir eru,
  • nafn þess sem annast samskipti við ráðuneyti,
  • nákvæm lýsing á verkefni, markmiðum þess og þýðingu fyrir umsækjanda og aðra,
  • tíma- og verkáætlun,
  • fjárhagsáætlun, þar sem fram koma m.a. upplýsingar um áætlaðan kostnað, tekjur, hlutdeild annarra í kostnaði við verkefnið og styrkfé sem verkefnið hefur hlotið eða hefur sótt um,
  • staðfest gögn frá samstarfsaðilum sem og önnur gögn til stuðnings umsókn.

Umsóknum skal skilað rafrænt á vef menningar- og viðskiptaráðuneytisins.

Nánari upplýsingar um umsóknarferlið má finna í reglum sjóðsins.

Í sumar hlutu 19 verkefni styrk í fyrstu úthlutun úr Hvata, en alls var úthlutað styrkjum að upphæð 19.880.000 kr.

Sjá nánar: Fyrsta úthlutun úr Hvata

Umsóknarfrestur: Hvati