Fara í efni

Fjöldi umsókna í Matsjánna

Fjöldi umsókna í Matsjánna

Umsóknarfrestur í Matsjánna lauk nú á dögunum en um er að ræða verkefni sem er ætlað smáframleiðendum matvæla sem vilja efla leiðtogafærni sína, öðlast aukna getu til að þróa vörur og þjónustu og efla tengslanetið sitt í greininni. Matsjáin fer fram á 14 vikna tímabili frá 6. janúar til 7. apríl og samanstendur af sjö lotum með heimafundum/jafningjaráðgjöf, fræðslu og erindum, verkefnavinnu og ráðgjöf. Verkefnið fer fram á netinu þvert á landið og lýkur með veglegri uppskeruhátíð þar sem þátttakendur hittast í raunheimi.

Alls hafa 82 smáframleiðendur matvæla skráð sig í Matsjánna. Landshlutasamtökin um land allt og SSFM eru himinlifandi með góðar viðtökur. Hér að neðan má sjá skiptingu þátttakenda eftir landshlutum, en átta aðilar hafa skráð sig í Matsjánna frá Norðurlandi eystra. 

 

Getum við bætt síðuna?