Fara í efni

Vörðum leiðina saman

Vörðum leiðina saman

Innviðaráðuneytið , í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, býður íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman.

Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkum ráðuneytisins. Meginviðfangsefni þeirra verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður nýsamþykkt byggðaáætlun kynnt.

Samráðsfundur á Norðurland eystra verður haldinn 19. október milli kl. 15.00-17.00. Fundurinn verður haldin í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams en nauðsynlegt er að skrá sig. Skráningu líkur daginn fyrir fund og þátttakendur frá boð í tölvupósti til að tengjast fundinum.

Skráning er hér

Getum við bætt síðuna?