Virkjum íbúana
Virkjum íbúana
Verkefnið Virkjum íbúana miðar að því að auka virkni, samveru og þátttöku íbúa á Norðurlandi eystra með því að efla samfélagshús og aðra staðbundna samkomustaði sem lifandi miðstöðvar í heimabyggð. Með verkefninu verður sveitarfélögum og stofnunum þeirra veittur stuðningur til að þróa fjölbreytt verkefni, viðburði og starfsemi sem byggja á þörfum hvers samfélags og hvetja ólíka hópa íbúa til þátttöku.
Í mörgum byggðarlögum eru til staðar samfélagshús, félagsheimili, bókasöfn, skólar, sundlaugar eða önnur rými sem gegna mikilvægu hlutverki sem samkomustaðir fyrir íbúa. Slík rými eru þó misvel nýtt og tækifæri eru til að efla hlutverk þeirra sem vettvang fyrir samveru, menningu, fræðslu, félagsstarf og samtal. Með aukinni virkni íbúa má efla félagsauð, draga úr einangrun, skapa sterkari tengsl milli kynslóða og hópa og auka lífsgæði í nærsamfélaginu. Verkefnið byggir á þeirri sýn að samfélagshús og aðrir samkomustaðir séu ekki aðeins húsnæði heldur mikilvægir samfélagsinnviðir sem styðja við þátttöku, samveru og lífsgæði íbúa.
Meginmarkmið verkefnisins er að stuðla að aukinni virkni íbúa á Norðurlandi eystra og efla hlutverk samfélagshúsa og annarra samkomustaða sem lifandi vettvangs í heimabyggð.
Framkvæmd og fyrirkomulag
SSNE hefur umsjón með verkefninu, auglýsir eftir verkefnahugmyndum og heldur utan um framvindu, ráðgjöf og eftirfylgni. Verkefnahugmyndir skulu berast SSNE innan auglýsts umsóknarfrests. Starfsfólk SSNE annast yfirferð og undirbúning mats á innsendum hugmyndum en stjórn SSNE tekur endanlega ákvörðun um úthlutun stuðnings til verkefna á grundvelli matsins.
Eingöngu sveitarfélög á Norðurlandi eystra innan SSNE eða stofnun þess geta sent inn verkefnahugmyndir. Félagasamtök, íbúahópar og einstaklingar geta verið samstarfsaðilar, en ekki aðalumsækjendur. Sveitarfélög geta unnið verkefnin í samstarfi við staðbundna aðila, félagasamtök, hópa eða einstaklinga.
Við mat á verkefnahugmyndum verður horft til þess hvort verkefnin stuðli að virkri þátttöku íbúa, séu aðgengileg og opin, hafi skýra tengingu við þarfir nærsamfélagsins og geti haft varanleg áhrif á nýtingu samkomustaða. Einnig verður litið til þess hvort verkefnin feli í sér samstarf ólíkra aðila og hvort þau geti orðið fyrirmynd fyrir önnur byggðarlög.
Stuðningur við verkefnin getur meðal annars nýst til undirbúnings, skipulags, utanumhalds, kynningar, aðkeyptrar þjónustu, efniskostnaðar, minni háttar aðstöðubóta eða annars stuðnings sem nauðsynlegur er til að koma verkefni af stað eða efla starfsemi í samfélagshúsi eða öðrum samkomustað.
Lokaafurð og ávinningur
Lokaafurð verkefnisins verður aukin virkni íbúa sveitarfélaganna, ásamt fjölbreyttum verkefnum sem hvetja til samveru, þátttöku og samstarfs íbúa. Til lengri tíma er markmiðið að til verði samfélagsmiðstöðvar eða virkari samkomustaðir sem halda áfram að laða fólk saman og styðja við lifandi nærsamfélög.
Ávinningur verkefnisins felst meðal annars í sterkari tengslum milli íbúa, aukinni þátttöku í félags- og menningarstarfi, betri nýtingu húsnæðis og aukinni sýnileika samfélagshúsa sem mikilvægra innviða í byggðarlögum. Verkefnið getur þannig orðið hvati að nýju samstarfi, aukinni virkni í sjálfboðastarfi og meiri tilfinningu íbúa fyrir því að þeir geti haft áhrif á eigið nærumhverfi.
Við hvetjum öll áhugasöm að hafa samband við verkefnastjóra SSNE Díönu Jóhannsdóttur og Elvu Gunnlaugsdóttur til að ræða hugmyndir.
Frestur til að skila inn verkefnahugmyndum er 29. október, sjá eyðublað hér SSNE.is