Fara í efni

Vinna við aðgerðaráætlun ferðaþjónustunnar hafin

Vinna við aðgerðaráætlun ferðaþjónustunnar hafin

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra hefur skipað sjö starfshópa sem falið er að vinna tillögur að aðgerðaáætlun fyrir ferðamálastefnu til 2030. Gert er ráð fyrir að stefnan og aðgerðaáætlunin verði lögð fyrir Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar um á vorþingi 2024.

„Það skiptir miklu máli að skapa ferðaþjónustunni hagfelld skilyrði til þess að vaxa og dafna með sjálfbærum hætti með það fyrir augum að skapa aukin verðmæti og lífsgæði fyrir íslenskt samfélag. Ég hef miklar væntingar til vinnu starfshópanna enda höfum við fengið til liðs við okkur fjölbreytt og öflugt fólk með víðtæka þekkingu og reynslu hvert á sínu sviði,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra.

Díana Jóhannsdóttir verkefnastjóri SSNE verður fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga í hópnum Uppbygging áfangastaða sem er undir forystu Arnheiðar Jóhannsdóttur framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands.

Hóparnir eru:

  1. Sjálfbærni og orkuskipti.
    Formaður: Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans.
  2. Samkeppnishæfni og verðmætasköpun.
    Formaður: Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu.
  3. Rannsóknir og nýsköpun.
    Formaður: Már Másson, framkvæmdastjóri Fossfall ráðgjafar.
  4. Uppbygging áfangastaða.
    Formaður: Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.
  5. Hæfni og gæði.
    Formaður: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands.
  6. Heilsu-, veitinga- og hvataferðaþjónusta.
    Formaður: Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu-, markaðs-, og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins.
  7. Menningartengd ferðaþjónusta.
    Formaður: Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu.

Öll eru hvött til að hafa samband við SSNE um málefni sem tengjast þessari vinnu.

Smelltu hér til að lesa alla fréttina um um aðgerðaáætlunina á vef Stjórnarráðsins.

Getum við bætt síðuna?