Fara í efni

Viltu sækja styrk? Vinnustofa í styrkumsóknum

Viltu sækja styrk? Vinnustofa í styrkumsóknum

Vinnustofa í umsóknarskrifum
SSNE býður frumkvöðlum á Norðausturlandi á vinnustofu þar sem ítarlega er farið í umsóknarskrif fyrir Vöxt/Sprett og Sprota innan Tækniþróunarsjóðs sem er einn stærsti styrktarsjóður landsins. Næsti skilafrestur fyrir Vöxt/Sprett og Sprota er 15. mars 2021, og getur styrkur numið allt að 50 m.kr. yfir tvö ár. Það er því til mikils að vinna!

Vinnustofan:

Fyrst fá þátttakendur sent þriggja klukkustunda netnámskeið Senza í Rannís skrifum, og byrja um leið að skrifa eigin umsókn, sjá nánar.

Í öðru lagi er kynningartími með leiðbeinanda á Zoom sem verður 22. febrúar á milli 11:00 og 11:15, þar sem leiðbeinandi útskýrir ferlið.

Í kjölfarið fylgir æfingatími með leiðbeinanda á Zoom sem verður 1. mars á milli 11:00 og 12:30, þar sem gefst færi á að spyrja nánar og fara ítarlega í þætti sem þátttakendur hafa rekið sig á í upphafi skrifa.

Síðasta skrefið er annar æfingatími en dagsetning fyrir hann verður fundinn í fyrri æfingatíma.

Á netnámskeiðinu er farið yfir raunverulegar umsóknir sem hafa fengið styrk, uppbyggingu umsókna, orðalag, trix og tækni sem byggir á áratuga reynslu en leiðbeinandi er Einar Sigvaldason hjá Senza. Ráðgjafar SSNE veita einnig ráðgjöf á vinnustofunni og verða þátttakendum innan handar. Einnig munum við fá nokkra frumkvöðla í heimsókn sem segja frá sínum umsóknarskrifum og miðla úr viskubrunni sínum.

Netnámskeiðið sem þátttakendur fá aðgang að gildir fram yfir umsóknarfrest í mars 2021 og aftur í tvo mánuði fyrir næstu tvo umsóknarfresti í september 2021 og febrúar/mars 2022. Þá fylgir vinnustofunni gagnabanki og aðgangur að lokuðum FB hóp þar sem þátttakendur geta hjálpast að. 

INNIFALIÐ:

– 23 video bútar á vefsvæði Teachable, umsókn brotin niður eftir spurningum.
– Glærur úr fyrirlestri settar undir hvern videobút, til að auka lesanleika.
– Excel skjöl til niðurhals úr tveimur umsóknum, hjálparskjal excel úr einni umsókn.
– Rafræni hlutinn á PDF formi.
– Word hjálparskjöl fyrir rafræna hluta fylgja með s.s. CV, samningar við auglýsendur, samstarfsaðila og verktaka, kaupréttarsamningur, uppkast að notendaviðmóti og viðhengi fyrir tæknilegt nýnæmi

VERÐ: Alls kr. 7.800
– Ofangreint verð er niðurgreitt af SSNE og ætlað viðskiptavinum á þeirra starfssvæði.
– Athugið að þar að auki veita mörg stéttarfélög styrk fyrir allt að 90% af netnámskeiðum.

Til að skrá sig þarf að senda tölvupóst ssne@ssne.is
Nánari upplýsingar veita Silja og Elva á netföngunum silja@ssne.is og elva@ssne.is

Getum við bætt síðuna?