Viðburðir á Norðurlandi eystra - Vilt þú fræðast um sniglarækt?
Viðburðir á Norðurlandi eystra - Vilt þú fræðast um sniglarækt?
Viðburðir á Norðurlandi eystra - Vilt þú fræðast um sniglarækt?
Sniglarækt sem ný aukabúgrein á Íslandi
Eimur hefur hrundið af stað verkefninu „Sniglarækt, sjálfbær nýting glatvarma“, sem hefur það meginmarkmið að kynna og innleiða sniglarækt sem raunhæfan, sjálfbæran og nýskapandi valkost fyrir bændur og aðra áhugasama á Íslandi. Verkefnið er svar við vaxandi þörf í íslenskum landbúnaði fyrir fjölbreyttari atvinnumöguleika og aukna verðmætasköpun í dreifbýli.
Sniglar – verðmæt og fjölbreytt afurð
Sniglar hafa reynst arðbær atvinnugrein víða í Evrópu, þar sem þeir eru eftirsóttir sem lúxusmatvara. Auk þess bjóða þeir upp á fjölbreytta möguleika til nýtingar; afurðir úr sniglum geta nýst sem hágæða próteinfóður fyrir fiskeldi, slím þeirra er eftirsótt innihaldsefni í snyrtivörur og skeljar þeirra má mala og nýta í áburð. Sniglarækt hefur ekki verið stunduð hér á landi, þó að aðstæður séu í raun mjög hentugar miðað við þær auðlindir sem við búum yfir. Sérstaklega er horft til möguleikans á að nýta hjárennslisvatn úr hitaveitum (glatvarma) í dreifbýli til að skapa þeim hentugt vaxtarumhverfi.
Fræðsluviðburðir í október
Fyrsti hluti verkefnisins felur í sér opna fræðsluviðburði á Norðurlandi, þar sem sérfræðingurinn og sniglabóndinn Peter Monaghan frá írsku sniglaræktinni Inis Escargot og Sigurður Líndal Þórisson hjá Eimi, kynna aðferðir og tækni sem henta íslenskum aðstæðum, en sérstaða Íslands í orku- og umhverfismálum skapar einstaka möguleika til að þróa vörur sem falla vel að kröfum nútíma neytenda.
Á fundunum verður meðal annars farið yfir:
- Hvernig hægt er að nýta glatvarma úr hitaveitulögnum til arðbærrar framleiðslu
- Sniglar sem lúxusmatvara á alþjóðamarkaði
- Nýting á afurðum snigla í fiskeldi, snyrtivörur og áburð
- Tækifæri til fjölbreyttari atvinnusköpun í dreifbýli
Viðburðirnir eru sérstaklega ætlaðir bændum, frumkvöðlum og öllum þeim sem hafa áhuga á sjálfbærri nýsköpun í landbúnaði.
Fræðsluviðburðir um sniglarækt verða haldnir á eftirfarandi stöðum:
- Þingeyjarsveit – 16. október kl. 10:00 - 14:00 · Sel Hótel, Þingeyjarsveit
- Akureyri – 16. október kl. 16:00 – 18:00 · Drift EA, Akureyri
Boðið verður upp á léttar veitingar á viðburðunum og er þátttaka ókeypis.
Smelltu hér til að skrá þig
Hagnýtt námskeið í sniglarækt á Írlandi – vorið 2026
Að loknum fræðsluviðburðum geta þátttakendur sótt um að taka þátt í hagnýtu námskeiði í sniglarækt á Írlandi. Vorið 2026 fá sex aðilar tækifæri til að taka þátt í þessari vikulöngu ferð, sem er einstakt tækifæri til að kynnast greininni í reynd.
Á námskeiðinu munu þátttakendur fá innsýn í alla þætti sniglaræktar – frá uppbyggingu og rekstri sniglabúa til markaðsmála og afurðasölu. Þannig öðlast þeir bæði djúpa og raunhæfa reynslu sem getur lagt grunn að eigin ræktun á Íslandi.
Hefur þú áhuga á að vita meira? Hafðu samband við Sigurð Líndal á netfangið s.lindal@eimur.is
Verkefnið er styrkt af Lóu - nýsköpunarsjóð.
Frétt á vef Eims: https://www.eimur.is/vilt-u-frast-um-sniglarkt-frsluviburir-a-norurlandi-i-oktober