Vetrarflug til Akureyrar í brennidepli á vinnustofu um Bretlandsmarkað
Vetrarflug til Akureyrar í brennidepli á vinnustofu um Bretlandsmarkað
Örlygur Hnefill Örlygsson, verkefnastjóri miðlunar hjá SSNE, tók þátt fyrir hönd samtakanna í vinnustofu um breska ferðamarkaðinn og sölumiðað markaðsstarf sem haldin var í Hofi á Akureyri 17. september. Markaðsstofa Norðurlands stóð að vinnustofunni í samstarfi við Íslandsstofu.
Tilefnið er meðal annars beint vetrarflug easyJet frá London og Manchester til Akureyrar. Samkvæmt upplýsingum Markaðsstofu Norðurlands eru um 19.500 staðfest sæti í fluginu í vetur. Á vinnustofunni var rætt hvernig ferðaþjónustufyrirtæki á Norðurlandi geta nýtt það tækifæri og breytt áhuga breskra ferðamanna í bókanir.
Íslandsstofa fór yfir gögn um breska markaðinn og markaðsstarfið sem unnið er undir merkjum Visit Iceland. Einnig voru kynntar niðurstöður nýrrar könnunar meðal ferðaheildsala, þar sem staða Norðurlands var sérstaklega dregin fram. Þátttakendur ræddu síðan hvernig fyrirtæki á svæðinu gætu fylgt sameiginlegu markaðsstarfi eftir í eigin sölu og kynningu.
„Þetta var mjög gagnleg vinnustofa og áhugavert að sjá þær hugmyndir sem fæddust í hópunum. Sumar þeirra voru alveg stórkostlegar. Beina flugið skapar mikil tækifæri fyrir Norðurland allt, en það skiptir máli að fyrirtæki og ferðaþjónustuaðilar á svæðinu vinni saman að því að nýta það,“ segir Örlygur Hnefill.
Vinnustofan var hluti af verkefninu Ferðaþjónusta til framtíðar, sem Íslandsstofa hefur umsjón með. Verkefnið miðar að markaðssetningu Íslands á völdum erlendum mörkuðum, með áherslu á sjálfbærni, langtímauppbyggingu ímyndar landsins og aukna verðmætasköpun í ferðaþjónustu.
Meðfylgjandi ljósmyndir tók Signý Jónasdóttir hjá Markaðsstofu Norðurlands.
