Fara í efni

Verkefnisstjóri verkefnisins „Betri Bakkafjörður“

Verkefnisstjóri verkefnisins „Betri Bakkafjörður“

Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, auglýsir eftir verkefnisstjóra verkefnisins „Betri Bakkafjörður“. Verkefnið er hluti af verkefnum „Brothættra byggða“ og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, SSNE og Langanesbyggðar. Um 100% starf er að ræða.

Verkefnisstjóri verkefnisins „Betri Bakkafjörður“

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfið. Háskólamenntun er kostur.
  • Haldbær reynsla af verkefnastjórnun.
  • Haldbær reynsla af styrkjaumsóknum.
  • Reynsla af samfélagsverkefnum.
  • Þekking, skilningur og reynsla af byggðamálum mikilvæg.
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og færni í mannlegum samskiptum.

Helstu verkefni:

  • Fylgja eftir ákvörðunum verkefnisstjórnar og markmiðum verkefnisáætlunar Betri Bakkafjarðar.
  • Leiðsögn og stuðningur við íbúa í frumkvæðisverkefnum þeirra.
  • Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu.
  • Miðlun upplýsinga og skýrslugerð til samstarfsaðila og íbúa.
  • Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í sveitarfélaginu.
  • Önnur verkefni í samstarfi við sveitarfélagið.

Nánari upplýsingar um verkefnið Brothættar byggðir og verkefnið Betri Bakkafjörð má finna á heimasíðu Byggðastofnunar.

Verkefnið er tímabundið til loka árs 2024. Verkefnið er unnið á Bakkafirði og er gerð krafa um fasta viðveru þar, og að verkefnisstjóri sé búsettur á Bakkafirði eða nágrenni.

Nánari upplýsingar veitir Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, albertina@ssne.is. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á sama netfang merkt „Betri Bakkafjörður“. Umsóknarfrestur er til og með 7. desember 2023.

Getum við bætt síðuna?