Fara í efni

Upptakturinn - Kröftug fræ og ellefu ný tónverk

Ljósmynd: Auðunn Níelsson
Ljósmynd: Auðunn Níelsson

Upptakturinn - Kröftug fræ og ellefu ný tónverk

Velheppnaðir tónleikar Upptaktsins, tónsköpunarverðlauna barna og ungmenna, fóru fram í Menningarhúsinu Hofi, sunnudaginn 24. apríl. Þar voru ellefu verk 13 ungra tónskálda á aldrinum 11-15 ára frá Akureyri, Eyjafjarðarsveit og Hrísey flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum. Verkin ellefu voru valin úr innsendum tónlistarhugmyndum, en börn í 5. -10. bekk í skólum á Norðurlandi eystra gátu tekið þátt í verkefninu. Verkin í ár voru afar fjölbreytt, en þar mátti heyra nýklassísk verk, popp-,rokk-, söngleikja-, jazz- og tölvuleikjalag. Lokapunktur Upptaktsins er svo þegar lögin ellefu verða gefin út á Youtube.

Kristín Sóley Björnsdóttir, verkefnastjóri Upptaktins og viðburðastjóri Menningarhússins Hofs segir tónleikana hafa tekist afar vel.

„ Þetta var sannkölluð uppskeruhátíð eftir sköpunarvinnu ungu tónskáldanna, útsetjara, tónlistarstjóra og hljóðfæraleikara. Það er ekki á hverjum degi sem ellefu ný tónverk eru samin af ungu fólki, útsett af fagfólki og flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum við bestu aðstæður. Við erum svo stolt af þessum ungu hæfileikaríku krökkum, þau eru sannarlega kröftug fræ sem munu með áframhaldandi vökvun blómstra í samfélaginu okkar. Þvílíkt ríkidæmi – framtíðin er sannarlega þeirra og ég efast ekki um að við fáum að njóta blómanna sem út spretta á komandi árum með þeim og enn fleiri þátttakendum í Upptaktinum. “ segir Kristín Sóley

Um útsetningu verkanna fyrir hljómsveit sáu þau Kristján Edelstein og Greta Salóme, en Greta er einnig tónlistarstjóri Upptaktsins.

Ungu tónskáldin og verk þeirra:

Amanda Eir Steinþórsdóttir - Two sided love story
Eiður Reykjalín Hjelm - Naughty elves
Gísli Freyr Sigurðsson - Out of my life
Haukur Skúli Óttarsson og Ragnheiður Birta Hákonardóttir - Spunaslóð
Heimir Sigurpáll Árnason - Láttu ætíð ljós frá þér.
Helga Björg Kjartansdóttir - Random hljómar í herberginu mínu
Jóhann Valur Björnsson - Adamant
Poets, bullets and society: Amanda Eir Steinþórsdóttir, Mahaut Ingiríður Matharel og Sólrún Alda Þorbergsdóttir - Katherine
Óðinn Thomas Atlason - Continuum
Torfhildur Elva F. Tryggvadóttir - Vordans
Gísli Erik Jónsson - Hrafn

Hljómsveitina skipuðu:

Ásdís Arnardóttir - selló
Emil Þorri Emilsson – slagverk
Greta Salóme – fiðla og söngur
Ívar Helgason - söngur
Jón Þorsteinn Reynisson - harmonikka
Kristján Edelstein – gítar
Petrea Óskarsdóttir - þverflauta
Risto Laur – flygill
Tómas Leó Halldórsson - bassi
Vilhjálmur Ingi Sigurðsson – trompet

Upptökustjóri: Haukur Pálmason
Hljóðmenn: Árni F. Sigurðsson og Bernharð Sveinsson

Upptakturinn er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu. Verkefnið er styrkt af SSNE.

Getum við bætt síðuna?