Fara í efni

Upptakturinn 2021 - tíu verk valin til þátttöku

Upptakturinn 2021 - tíu verk valin til þátttöku

Valið hefur verið tíu verk til þátttöku í Upptaktinum 2021 á Akureyri. Yfir 20 verk bárust  og höfðu fagmenn dómnefndar, sem skipuð er landsþekktum tónlistarmönnum, því í nægu að snúast en umsóknarfrestur rann út þann 17.mars sl.

Upptakturinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna, gefur ungu fólki tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum með fulltingi listafólks. Upptakturinn er fyrir börn í 5.- 10.bekk. Markmið Upptaktsins er að stuðla að tónsköpun ungs fólks og hvetja börn og ungmenni að semja eigin tónlist og fullvinna hugmyndir sínar í vinnusmiðju og gefa þeim tækifæri að upplifa eigin tónlist í flutningu fagfólks við kjöraðstæður á tónleikum.

Afrakstur vinnunnar má sjá og heyra á tónleikum Upptaktsins í Menningarhúsinu Hofi sunnudaginn 9. maí næstkomandi þar sem atvinnuhljóðfæraleikarar leika tónverkin og þau varðveitt með upptöku. Tónlistarfólkið Greta Salóme og Kristján Edelstein vinna með krökkunum áfram að útsetningu laganna fyrir flutning á tónleikunum.

Við óskum ungu tónskáldunum innilega til hamingju.

Upptakturinn er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu og styrkt af SSNE.

Getum við bætt síðuna?