Fara í efni

Uppskera á Bakkafirði

Uppskera á Bakkafirði

Miðvikudaginn 16. febrúar kl. 12:00 fór fram úthlutun styrkja úr Frumkvæðissjóði Betri Bakkafjarðar fyrir árið 2022. Þá fór einnig fram undirritun samfélagssáttmála milli íbúa við Bakkaflóa, Langanesbyggðar og Byggðastofnunar vegna byggðar við Bakkaflóa.

Samfélagssáttmáli milli íbúa við Bakkaflóa, Langanesbyggðar og Byggðastofnunar vegna byggðar við Bakkaflóa

Bakkafjörður hóf göngu sína í verkefninu Brothættar byggðir árið 2019 undir heitinu Betri Bakkafjörður.

Til að vel takist til með að endurreisa atvinnulíf og byggð við Bakkaflóann, er ljóst að allir þurfa að leggjast á árar. Samstillt átak íbúa, sveitarfélags, landshlutasamtaka og ríkis er lykillinn að velgengni í verkefninu. Því hefur verið lögð áhersla á aðkomu ríkisins og stofnana þess að sérstökum sáttmála til stuðnings framlagi íbúa og fyrirtækja við Bakkaflóa og sveitarfélags. Með undirritun sinni staðfesta allir aðilar samningsins ríkan samstarfsvilja með formlegum hætti.

Aðdragandinn hefur verið langur, en tillaga um sáttmála sem þennan var fyrst lögð fram í skýrslu nefndar fulltrúa fimm ráðherra um málefni Bakkaflóa, frá 16. nóvember 2018. Þegar nýstofnað Hverfisráð Bakkafjarðar tók til starfa árið 2020 skapaðist formlegur samráðsvettvangur milli íbúa og sveitarfélags og hafa íbúar frá þeim tíma verið leiðandi í þessari vinnu allri. Samfélagssáttmálinn byggir m.a á tillögum hverfisráðs og endurspeglar þannig áherslumál íbúa.

Hér má sjá samfélagssáttmála milli íbúa við Bakkaflóa, Langanesbyggðar og Byggðastofnunar vegna byggðar við Bakkaflóa.

Tíu samfélagseflandi verkefni styrkt á Bakkafirði

Þann 21. janúar sl. var úthlutað 8.800.000 kr. úr verkefninu Betri Bakkafjörður til 10 samfélagseflandi verkefna á árinu 2022. Auglýst var eftir umsóknum í nóvember sl. og bárust sautján umsóknir um styrki að upphæð 42,9 m.kr. Til úthlutunar er fjármagn að upphæð 7 m.kr. sem koma í gegnum verkefnið Brothættar byggðir fyrir árið 2022, auk þess 1.8 m.kr. sem verkefnisstjórn hefur innkallað frá fyrri úthlutunum. Alls er því úthlutað 8.800.000 kr.


Úthlutun styrkja úr Frumkvæðissjóði Betri Bakkafjarðar. Nokkrir styrkþeganna voru fjarverandi.

Nafn umsækjanda

Nafn verkefnis

Styrkupphæð

Reimar Sigurjónsson

Fjöruviður: Nytjahlutir úr Rekavið

650.000,-

Vilhjálmur B. Bragason

SAMSPIL - Frá nyrstu ströndum

500.000,-

Birgir Ingvarsson

Gunnólfsvíkurfjallið er svo blátt

500.000,-

Björgunarsveitin Hafliði

Endurnýjun á Arnarbúð

1.200.000,-

North East Travel ehf.

Bakkafest

750.000,-

Krzysztof Krawczyk og Sigríður Indriðadóttir

Gjafagrindur

950.000,-

Ania Kowalska/óstofnað hlutafélag

Markaðsþjónusta á Bakkafirði

1.000.000,-

Fljótir flutningar ehf.

Þjónustuverkstæði

1.000.000,-

Langanesbyggð

Orkusparnaður á Bakkafirði

1.250.000,-

North East Travel ehf.

Þjónustukjarni

1.000.000,-

   

Kr. 8.800.000,-


Um er að ræða fjölbreytt verkefni sem hlutu styrki að þessu sinni. Verkefni til að mynda um orkunýtingu, sögusýningu, handverksfyrirtæki, markaðsþjónustu, og menningarhátíðir. Markmiðið með þessum verkefnum er að styrkja innviði samfélagsins við Bakkaflóa, skapa atvinnu og fjölga fólki á svæðinu í samræmi við stefnumótun fyrir verkefnið sem samþykkt var á íbúafundi haustið 2019.
Verkefnið Brothættar byggðir miðar að víðtæku samráði og því að virkja þekkingu og getu íbúa byggðarlaga til að móta framtíðarsýn, markmið og lausnir. Enn fremur að virkja frumkvæði og samtakamátt íbúa og auka vitund þeirra um eigin þátt í þróun samfélagsins.

Við óskum styrkhöfum innilega til hamingju.

Hér má lesa bækling um nánari útlistun á verkefnum
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Már Gunnarsson (gunnar@ssne.is) verkefnisstjóri verkefnisins í síma 864-2051.

Getum við bætt síðuna?