Ungmennaþing SSNE 2026
Ungmennaþing SSNE 2026
Ungmennaþing SSNE 2026 fór fram dagana 14.–15. apríl á Fosshótel Húsavík. Fimmtíu ungmenni mættu frá 10 sveitarfélögum á Norðurlandi eystra ásamt starfsfólki ungmennaráðanna og gestum. Markmið þingsins var að efla ungmennin í hlutverki sínu sem virkir þátttakandi í ungmennaráðum sveitarfélaganna og þannig gera ungmennaráðin gildandi í ákvarðanatöku sveitarfélaganna.
Fyrri dagurinn var helgaður samhristingi þar sem áhersla var lögð á hópefli og samveru og lauk með kvölddagskrá þar sem allir fóru í Sjóböðin eða áttu notalega stund á hótelinu.
Fræðsla og samtal
Helena Eydís Ingólfsdóttir, formaður byggðaráðs Norðurþings og varaformaður stjórnar SSNE setti þingið formlega. Hún hvatti krakkana áfram til góðra verka og ítrekaði fyrir þeim að þau gætu haft mikil áhrif í sínum hlutverkum í ungmennaráði sveitarfélaganna. Meðal umfjöllunarefna á þinginu voru niðurstöður ungmennaþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá desember 2025, erindi frá SAMFÉS og Farsældarráði Norðurlands eystra.
Megináhersla þingsins var á borðavinnu og samtal um leiðir til að auka áhrif ungmennaráða í heimabyggð, meðal annars með markvissu samráði við kjörna fulltrúa, skýrari verkferlum og sýnileika í samfélaginu. Í lok dags kom hvert ungmennaráð saman með sínum starfsmanni og mótuðu næstu skref í heimabyggð.
Ungmennaþinginu lauk með heimsókn á Eurovision safnið og upptökustúdíó á Húsavík áður en haldið var heim. SSNE þakkar ungmennaráðum, starfsfólki þeirra og öðrum gestum kærlega fyrir góða þátttöku og samstarf á þinginu. Niðurstöðum og hugmyndum sem urðu til á þinginu verður fylgt eftir í samtali við ungmennaráð og sveitarfélög á svæðinu á næstu misserum.
Ályktun Ungmennaþings SSNE 2026
Ungmennaþing SSNE 2026 skorar á sveitarstjórnir og framboð til sveitarstjórna á Norðurlandi eystra að tryggja að ungmennaráð verði virkur og eðlilegur hluti af ákvarðanatöku sveitarfélaga.
Ungt fólk vill taka þátt, láta í sér heyra og hafa áhrif — sérstaklega í málefnum sem snerta líf þeirra, aðstæður og framtíð. Ungmennaráð eru mikilvægur vettvangur fyrir slíka þátttöku og eiga ekki að vera til málamynda heldur raunveruleg rödd í stjórnsýslu sveitarfélaga.
Ungmennaþingið leggur áherslu á að:
Ungmennaráð fái skýrt hlutverk og raunverulegt umboð, ungmennaráð séu höfð með í ráðum þegar fjallað er um málefni sem varða börn og ungmenni, skýrar boðleiðir séu milli ungmennaráða, nefnda og sveitarstjórna og að tekið sé mark á tillögum og sjónarmiðum ungmennaráða, með skýrum svörum og eftirfylgni.
Ungmennaþing SSNE hvetur framboð til sveitarstjórna til að gera þátttöku ungmennaráða að skýrum hluta af stefnu sinni og sýna í verki að rödd ungmenna skiptir máli. Virkt lýðræði byggir á því að ungt fólk hafi tækifæri til að hafa áhrif – ekki aðeins í framtíðinni, heldur hér og nú.