Ungmennaþing Norðurlands eystra 2026 – skýslan komin út
Ungmennaþing Norðurlands eystra 2026 – skýslan komin út
Dagana 14.–15. apríl fór fram Ungmennaþing Norðurlands eystra 2026 á Fosshótel Húsavík, þar sem fulltrúar ungmennaráða úr tíu sveitarfélögum á Norðurlandi eystra komu saman til að ræða áhrif, hlutverk og framtíð ungmennaráða. Þingið var skipulagt af SSNE í samstarfi við starfsfólk ungmennaráða.
Helstu niðurstöður þingsins sýna að ungmennaráð skipta máli – 97% þátttakenda telja að þau gefi ungmennum tækifæri til að hafa áhrif á málefni sveitarfélaga sem snerta börn og ungmenni. Ungmennaráð hafa haft áhrif á fjölbreytt verkefni, til dæmis endurbætur á aðstöðu í líkamsrækt, styrkingu félagsmiðstöðva, endurnýjun gervigrass á fótboltavelli, lengri opnunartíma í sundlaug, betri lýsingu í bænum og aukinn snjómokstur. Einnig geta ungmennaráð haft áhrif á mál eins og skólamál, íþróttir, samgöngur og aðgengi að heilbrigðisþjónustu.
Þátttakendur fóru heim með nýjar hugmyndir og næstu skref fyrir sín ungmennaráð. Mikil áhersla var lögð á að auka sýnileika, bæta samfellu í starfi ráðanna og tryggja markvissa eftirfylgni við erindi og ábendingar til sveitarfélaga.