Fara í efni

Ungmennaþing áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra

Ungmennaþing áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra

Ungmennaþing SSNE fór fram á Dalvík dagana 13.-14 október 2022. Þingið var að þessu sinni haldið í menningarhúsinu Berg á Dalvík og var þar samankomin hópur ungmenna úr sveitarfélögum landshlutans, ásamt starfsmönnum sveitarfélaga. Þetta er í þriðja sinn sem Ungmennaþing er haldið í landshlutanum en verkefnið er eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Norðurlands eystra árið 2022.

Starfsmenn SSNE sáu um skipulag og framkvæmd þingsins. Dagskrá þingsins var fjölbreytt en þemað að þessu sinni var frumkvöðlahugsun, fullnýting auðlinda og nýsköpun. EIMUR sá um fræðslu og dagskrá í góðri samvinnu við starfsmenn SSNE.

Unnið var með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna nr. 9, 11, 12 og 13 en markmið þingsins var einnig að valdefla ungmennin, fá raddir þeirra í Sóknaráætlun og fá þau til að kynnast ungmennum úr öðrum sveitarfélögum. Spurningin sem ungmennin unnu hvað mest með var einföld en samt nokkuð flókin: Hvernig gerum við Norðurland eystra að besta stað á Íslandi til að búa á?

Þá fengu þátttakendur innblástur frá Svövu Björk Ólafsdóttir hjá RATA ráðgjöf og fengu þau innsýn í það hvernig er að vera frumkvöðlar. Ungmennunum var svo skipt niður í hópa og bjuggu þau saman til fyrirtæki, lærðu um og fylltu inn í viðskiptamódel Canvas og héldu kraftmiklar kynningar. Dregin var upp mynd af því sem betur mætti fara og einnig því sem er vel gert og sköpuðust því líflegar umræður og höfðu ungmennin margt til málanna að leggja.

Á þinginu var einnig unnið var með forritið MENTI þar sem ungmennin svöruðu fjölbreyttum spurningum sem tengdust málefnum þingsins og hafa starfsmenn SSNE talsvert efni til að vinna með.

Við þökkum Dalvíkingum fyrir góðar móttökur. Framtíðin er björt með þetta flotta unga fólk í fararbroddi í landshlutanum.

Ungmennaþing verður einnig áhersluverkefni Sóknaráætlunar árið 2023. Við hlökkum við til að skipuleggja ungmennaþing aftur í samvinnu við starfsönnum sveitarfélaga í landshlutanum. Fyrsti skipulagsfundur verður haldinn eftir páska þar sem staður, stund og þema þingsins verður ákveðið.

Getum við bætt síðuna?