Fara í efni

Þrjú verkefni á Norðurlandi eystra hlutu styrk úr stefnumótandi byggðaáætlun

Þrjú verkefni á Norðurlandi eystra hlutu styrk úr stefnumótandi byggðaáætlun

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra úthlutaði styrkjum að upphæð 130 milljónum króna til 12 verkefna á vegum sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga. Styrkjunum er ætlað að efla byggðir landsins og er úthlutað til sértækra verkefna á sóknaráætlanasvæðum. Alls bárust 32 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmar 857 m.kr. fyrir árið 2023.

Eftirfarandi verkefni fengu styrk á Norðurlandi eystra:

  • Kostir í hitaveituvæðingu Grímseyjar. Fyrirhugað er að staðsetja vinnsluholu og endurmeta fyrri gögn. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) hljóta styrk að upphæð 4.300.000 kr.
  • Gígur – uppbygging á aðstöðu fyrir nýsköpun, menntun og rannsóknir í Þingeyjarsveit.Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra hljóta styrk að upphæð 2.250.000 kr.
  • Straumhvörf – ný hringrás gesta um Austur- og Norðurland. Um er að ræða samstarf SSA, SSNV, SSNE, áfangastofa Norður- og Austurlands, Austurbrúar og Markaðsstofu Norðurlands um framkvæmd hönnunar- og vörusmiðju nýrrar hringrásar ferðamanna um Austur- og Norðurland í tengslum við beint millilandaflug á Egilsstaði og Akureyri. Samband sveitarfélaga á Austurlandi hljóta styrk að upphæð 15.650.000 kr.

Markmiðið með framlögunum er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Áhersla er lögð á að styrkja svæði þar sem er langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf. Verkefni sem hljóta styrk skulu nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans, eða landshlutanum í heild. Íbúaþróun, samsetning atvinnulífs og atvinnustig og meðaltekjur var meðal þess sem lagt til grundvallar við mat á umsóknum.

SSNE óskar þessum verkefnum innilega til hamingju með styrkinn.

Sjá nánar á heimasíðu Byggðastofnunar 

Getum við bætt síðuna?