Fara í efni

Tvenn hvatningarverðlaun Eyrararrósarinnar til Norðurlands eystra

Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarkona tók við verðlaununum fyrir hönd Tankanna á Raufarhöfn, Aðalheið…
Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarkona tók við verðlaununum fyrir hönd Tankanna á Raufarhöfn, Aðalheiður S. Eysteinsdóttir listakona og handhafi Eyrarrósarinnar 2023, Hr. Björn Skúlason maki forseta og verndari Eyrarrósarinnar, Lára Sóley Jóhannsdóttir listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík og Dr. Jack Armitage fræði- og listamaður, sem og forsprakki ,,Afhverju Ekki“

Tvenn hvatningarverðlaun Eyrararrósarinnar til Norðurlands eystra

Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. 

  • Hún beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. 
  • Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar eru veitt nýrri verkefnum eða verkefnum í þróun sem þykja hafa listrænan slagkraft, jákvæð áhrif á nærsamfélagið og hafa alla burði til að festa sig varanlega í sessi.
  • Að verðlaununum standa í sameiningu Byggðastofnun, Icelandair og Listahátíð í Reykjavík
  • Hr. Björn Skúlason maki forseta og verndari Eyrarrósarinnar veitir verðlaunin.

Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar voru nú veitt í þriðja sinn. Þrjú verkefni hlutu framgang: Gletta á Borgarfirði Eystri, Afhverju Ekki á Laugum, Þingeyjarsveit og Tankarnir á Raufarhöfn. Hljóta þau hvert um sig verðlaunafé að upphæð kr. 750.000 auk gjafakorts frá Icelandair að upphæð kr. 100.000.

Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar til „Afhverju Ekki“, einnig nefnt „The Absolutely Everything Studio“ í Þingeyjarsveit

„Afhverju Ekki“ er þverfaglegt vinnustofurannsóknarsetur sem stofnað var árið 2024. Verkefnið er leitt af Dr. Jack Armitage fræði- og listamanni.

Afhverju Ekki stuðlar að samvinnu og samstarfi vísinda og lista með það að marki að finna lausnir á flóknum vistfræðilegum viðfangsefnum. Setrið er staðsett í Breiðanesi, á Laugum í Þingeyjarsveit. Þegar hefur verið tekið á móti sex fræði- og listamönnum sem komið hafa til vinnudvalar og unnið að hönnun, hugbúnaðarþróun og listsköpun, meðal annars fyrir sýningu Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr.

Í húsinu er starfrækt er keramíkverkstæði sem hefur reynst mikilvægt bæði þegar kemur að námi og listsköpun, sérstaklega fyrir íbúa svæðisins. Einnig er þar í þróun fablab, wetlab og vinnurými. Aðstaðan öll er til mikillar fyrirmyndar en til framtíðar er stefnt á að bæta við verslun með listmuni, aðstöðu til upptöku hlaðvarpa og að standa fyrir ýmiskonar viðburðahaldi.

Lögð er áhersla á að Norðurausturland verði í forystu um að takast á við brýnar vistfræðilegar áskoranir. Með þverfaglegu samstarfi er skapaður vettvangur þar sem menning og listir hafa áhrif á vistvæna hugsun og nýsköpun.

Afhverju Ekki stuðlar að auknum tengslum milli lista, vísinda og náttúru, opnar glugga fyrir alþjóðlegt samstarf og veitir innlendum og erlendum aðilum fyrirtaks aðstöðu til fræðastarfa og listsköpunar. Um er að ræða einstakt verkefni á sínu sviði, ekki bara í Þingeyjarsveit, heldur á landinu öllu. Áhersla er lögð á tengingu við nærumhverfið og felur verkefnið í sér mikilvæg tækifæri fyrir nærsamfélagið.

Sjá nánari upplýsingar hér um starf Afhverju Ekki

Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar til verkefnisins „Tankarnir á Raufarhöfn“ í Norðurþingi

Lýsistankarnir á Raufarhöfn stóðu tómir frá 2006 en hafa nú, að ósk íbúa, fengið nýtt hlutverk; lýsistankar breytast í listatanka. Þetta eru stærstu tankar landsins og hljómburðurinn í þeim er fagur og trévirkið í þakinu mikil prýði. Tankarnir fengu styrk úr Byggðaáætlun til að vinna að endurbótum og eru nú manngengir, rafvæddir og upp að þeim liggur nýlagður malarstígur.

Unnin hafa verið drög að listastefnu fyrir tankana og verið er að móta verkefnaskrá fyrir næstu þrjú sumur. Jákvæðu áhrifin eru enn aðeins á huga heimamanna, breytingin á tönkunum er rétt orðin. En til langframa litið er ávinningur verkefnisins hvort tveggja í senn samfélagslegur og menningarlegur fyrir brothætta jaðarbyggð sem Raufarhöfn er.

„Tankarnir standa í bænum miðjum; grófir, tröllauknir, hringlóttir; fallegir í ljótleika sínum. Þeir hafa glatað upprunalegum tilgangi. Ekki er hægt að rífa þá, því það væri samkvæmt umhverfisreglum, óskaplega dýrt. Ekki hægt að láta þá grotna niður, því það yrði niðurdrepandi fyrir alla. Eina sem hægt er að gera er að fylla þá af furðum og list og nota þá til að blása mönnum hug í brjóst.”

Tankarnir eru metnaðarfullt verkefni sem kemur beint frá litlu samfélagi í breytingum, samfélagi sem vill endurskapa sig og mun með þessu ná nýrri tengingu við eigin bæ og sögu en einnig tengingu við listafólk og listunnendur víða að.
Nánari upplýsingar um tankana og dagskrá sumarsins má finna inn á tankarnir.is

20 ára saga Eyrarrósarinnar


Tuttugu ár eru nú liðin frá því að Eyrarrósin var veitt í fyrsta sinn, og hlaut Þjóðlagahátíðin á Siglufirði þá þann verðuga titil. Það var því afar viðeigandi að afhending Eyrarrósarinnar á þessu afmælisári hafi verið veitt á Siglufirði, auðvitað í blíðskaparveðri. Síðasti handhafi Eyrarrósarinnar var listakonan Alla Sigga og hennar merka starf í Alþýðuhúsinu. Opnaði hún hús sitt og garð fyrir gestum þessar hátíðardags og umvafði dagskrána á sinn einstaka hátt. Sveitarfélagið, Síldarminjasafnið, Primex og Segull 67 tóku afar vel á móti Hr. Birni Skúlasyni maka forseta, stjórnendum Listahátíðar, handhöfum Eyrarrósarinnar og menningarfulltrúum og veittu innsýn í listalíf,  frumkvöðlastarf, matar- og mannauð Fjallabyggðar. 

Frétt um handahafa Eyrarrósarinnar 2025, Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði, má lesa hér

Upplýsingar um verkefnin voru teknar saman af Listahátíð í Reykjavík

Getum við bætt síðuna?