Fara í efni

Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar og byggingarmála á Norðurlandi eystra

Akureyri að hausti.
Akureyri að hausti.

Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar og byggingarmála á Norðurlandi eystra

Fimmtudaginn 23. október verður haldinn opinn fundur um þróun og framtíðarhorfur íbúðarmarkaðar á Norðurlandi eystra. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum HMS, Hafnarstræti 107 á Akureyri, kl. 12 og er opinn öllum. Að fundinum standa HMS, Tryggð byggð og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.

Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins.

Dagskrá

  • Staðan í Akureyrarbæ
    Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar
  • Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur
    Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS
  • Byggingarleyfi á Íslandi – allt á einum stað
    Dagný Geirdal, verkefnastjóri Mannvirkjaskrár hjá HMS

Fundarstjóri verður Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE.

Húsið opnar kl. 11:45 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.

Við bjóðum öll velkomin og hlökkum til að sjá ykkur.

Getum við bætt síðuna?