Fara í efni

Þrjú verkefni á Norðurlandi eystra hljóta styrk úr Byggðaáætlun – samtals 38 milljónir króna

Þrjú verkefni á Norðurlandi eystra hljóta styrk úr Byggðaáætlun – samtals 38 milljónir króna

Innviðaráðherra hefur úthlutað 170 milljónum króna til fjórtán verkefna víðs vegar um landið til að efla viðkvæmar byggðir. Úthlutunin er sú hæsta sem veitt hefur verið úr aðgerð C.1 – Sértæk verkefni sóknaráætlunarsvæða – á gildistíma núverandi byggðaáætlunar.

Þrjú verkefni á Norðurlandi eystra hlutu styrk, alls 38 milljónum króna. Verkefnin snúa öll að því að efla innviði, styðja við atvinnuskapandi þróun og styrkja byggðafestu á norðausturhorninu.

Lýsistankar á Raufarhöfn – 8 m.kr.
Veittur áframhaldandi styrk til að ljúka viðgerðum á þaki og koma upp merkingum við Lýsistankana á Raufarhöfn. Þetta eru mikilvæg skref til að gera mannvirkið fullnægjandi, öruggt og tilbúið til notkunar í menningar-, lista- og ferðaþjónustu.

Ráðhúsið á Raufarhöfn – atvinnu- og samfélagssetur – 10 m.kr.
Veittur er framhaldsstyrkur til að ljúka endurbótum á Ráðhúsinu og skapa þar aðstöðu fyrir fjölbreyttari atvinnustarfsemi. Markmiðið er að laða að frumkvöðla og nemendur, efla menntunarstig og styðja við samfélagið með öflugum samveru- og vinnurýmum.

Vaxtarplan fyrir Norðausturhornið – innviðir og aukin verðmætasköpun – 20 m.kr.
Verkefnið miðar að því að greina helstu tækifæri á norðausturhorninu, móta framtíðarsýn um innviðauppbyggingu og skapa forsendur fyrir nýja verðmætasköpun. Verkefnið fylgir eftir nýlegu samkomulagi sem tryggir aukið afhendingaröryggi raforku á svæðinu – lykilatriði fyrir framtíðaruppbyggingu atvinnulífs.

Nánari upplýsingar um áherslur stjórnvalda vegna sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða er að finna í C.1. lið Stjórnarráðið | C.01. Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða

Getum við bætt síðuna?