Fara í efni

Þriggja milljóna króna styrkur til Veltek og Fjallabyggðar

Þriggja milljóna króna styrkur til Veltek og Fjallabyggðar

Veltek (Heilbrigðis- og velferðarklasi Norðurlands) og Fjallabyggð sendu inn umsókn í sjóðinn Integrated Health and Care sem var samþykkt. Styrkurinn er þrjár milljónir og verður hann notaður til að halda tvær vinnustofur, greiða fyrir ferðakostnað á sýningu erlendis og til kaupa á ráðgjöf. Vinnustofurnar munu snúa að samþættingu sú fyrri með hagaðilum og sú síðari með öðrum sveitarfélögum þar sem sérstaklega er horft á yfirfærslugildi verkefnisins.

SSNE óskar Veltek og Fjallabyggð innilega til hamingju með styrkinn.

 

Myndin er frá undirritun samstarfsyfirlýsingar milli Veltek, HSN og Fjallabyggðar í júní sl. F.v. Perla Björk Egilsdóttir, Sigríður Guðrún Hauksdóttir frá Fjallabyggð og Jón Helgi Björnsson HSN.

Getum við bætt síðuna?