Fara í efni

Tækifæri til vaxtar - námskeið á Norðurlandi

Tækifæri til vaxtar - námskeið á Norðurlandi

Námskeiðið ber yfirskriftina Tækifæri til vaxtar og er ætlað fyrirtækjum og frumkvöðlum á Norðurlandi.
Námskeiðið verður haldið 22. október í húsnæði Drift EA að Standgötu 1 á Akureyri. Í boði er einnig einstaklings- og fyrirtækjaráðgjöf daginn eftir, eða 23. október.

Námskeiðið hentar:

  • Litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Norðurlandi
  • Frumkvöðlum
  • Öllum sem vilja auka möguleika sína á styrkjum, tengslaneti og vexti, bæði hér heima og á alþjóðavettvangi

Leiðbeinendur:

Mjöll Waldorff og Sigþrúður Guðnadóttir. Þær eru báðar sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís og hluti af alþjóðateymi sviðsins og starfa að verkefninu Enterprise Europe Network. Þær búa að áralangri reynslu þegar kemur að stuðnings- og styrkjaumhverfinu, bæði hér innanlands og erlendis.

Dagskrá námskeiðsins: Tækifæri til vaxtar

8:30-9:00 Skráning og morgunkaffi

  • 9:00-9:15 Kynning á dagskrá og markmiðum
  • 9:15-9:45 Innlendir styrkir, stuðningur við nýsköpun
  • 9:45-10:45 Erlendir styrkir

10:45-11:00 Kaffihlé og tengslamyndun

  • 11:00-12:00 Horizon Europe
  • 12:00-12:30 Greining á styrkhæfi

12:30-13:30 Hádegisverður og tengslamyndun

  • 13:30-14:00 Enterprise Europe Network
  • 14:00-14:30 Pitch þjálfun
  • 14:30-15:00 Lokaorð og næstu skref

Dagsetning: 22. október 2025, kl. 8.30-15.00

Fyrirtækja- og einstaklingsráðgjöf, er í boði þann 23. október. Sérstök skráning verður á námskeiðinu sjálfu.

Staðsetning: Drift EA, Strandgata 1, Akureyri

Námskeiðið er ókeypis en nauðsynlegt að skrá sig: https://forms.office.com/Pages/ResponsePage.aspx?id=bTBKdmgKrUWfB28YBER81G3ytvlFN0NMuI6cf493SRVUM1VTUFNZUUZEV0pCVThESDY4Q1ZBOUVIUy4u

Hér er hlekkur á frétt á vefsíðu EEN: Námskeið: Tækifæri til vaxtar - EEN - Iceland

Getum við bætt síðuna?