Fara í efni

Styrkjum úthlutað til verslana í dreifbýli

Styrkjum úthlutað til verslana í dreifbýli

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036. Að þessu sinni var úthlutað fimmtán milljónum kr. til verslunar í dreifbýli fyrir árið 2024. Þrír styrkir komu á Norðurland eystra, til Hríseyjar, Grímseyjar og Bakkafjarðar. 

Markmiðið er að styðja við rekstur dagvöruverslana í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum á fámennum markaðssvæðum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu. Samtals bárust ellefu gildar umsóknir.

Verkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni eru:

  • Verzlunarfélag Árneshreppur 3 milljónir kr.
  • Kríuveitingar, verslun í Grímsey 2,5 milljónir kr.
  • Verslunar og pöntunarþjónusta á Bakkafirði 2 milljónir kr.
  • Búðin, Borgarfirði eystri 2 milljónir kr.
  • Hríseyjarbúðin 2 milljónir kr.
  • Verslunarfélag Drangsness 2 milljónir kr.
  • Verslun á Reykhólum 1,5 milljónir kr.

Allir styrkirnir eru vegna rekstrar á árinu 2024 nema sá síðastnefndi sem veittur er til undirbúnings verslunar á Reykhólum.

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknirnar og gerði tillögur til ráðherra. Í valnefnd sátu þau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Ferðamálastofu, Sigurður Árnason, sérfræðingur á Byggðastofnun, sem jafnframt er formaður og Snorri Björn Sigurðsson fyrrverandi forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar. Með valnefnd starfaði Sigríður K. Þorgrímsdóttir sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036.

Getum við bætt síðuna?