Fara í efni

Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu: Ísland, Grænland og Færeyjar

Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu: Ísland, Grænland og Færeyjar

Á heimasíðu Ferðamálastofu kemur fram að nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki frá NATA (North Atlantic Tourism Association), samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála.

Áherslur:

Í samræmi við það sem samningur landanna kveður á um er hægt að sækja um styrki til tvenns konar verkefna:

  • Þróunar- og markaðsverkefna í ferðaþjónustu
  • Kynnis- og námsferða

Sérstaklega verður litið til umsókna þar sem áhersla er á endurræsingu ferðaþjónustunnar eftir Covid-19, sjálfbærni og stafræna væðingu í ferðaþjónustu.

Styrkir vegna þróunar- og markaðsverkefna:

Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu í samstarfi landanna þriggja geta sótt um styrk. Skulu verkefnin fela í sér samstarf milli aðila í tveimur af löndunum þremur hið minnsta. Dæmi um verkefni sem NATA styrkir eru:

  • Nýsköpunar- og vöruþróunarverkefni
  • Sameiginleg markaðssetningarverkefni
  • Þekkingarheimsóknir og miðlun gagnkvæmrar reynslu milli ferðaþjónustuaðila
  • Gæða- og umhverfismál innan ferðaþjónustunnar

-> Hámarksstyrkur verkefnis er 100 þúsund danskar krónur, eða að hámarki 50% kostnaðaráætlunar.

Styrkir vegna kynnis- og námsferða:

Um er að ræða ferðastyrki til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 2.000 danskar krónur vegna ferða milli Íslands og Grænlands annars vegar og 1.000 danskar krónur vegna ferða á milli Íslands og Færeyja hins vegar. Ekki eru veittir styrkir vegna gistingar og uppihalds.

Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra:

  • Skóla
  • Íþróttahópa
  • Tónlistarhópa
  • Annars menningarsamstarfs

Hvar er sótt um?

Allar umsóknir þurfa að berast með rafrænum hætti á þar til gerðum umsóknarblöðum sem finna má á vef NATA. Vefurinn og umsóknarformin eru bæði á dönsku og ensku.

Skilafrestur

Lokafrestur til að skila umsókn er á miðnætti (GMT) 5. september 2022. Umsóknir eða fylgigögn sem berast eftir þann tíma verða ekki tekin gild. Niðurstaða stjórnar NATA um úthlutun mun liggja fyrir 31. september 2022. Athugið að verkefni með áætluð verklok fyrir 31. september 2022 eru ekki styrkhæf.

Hvernig verkefni hafa hlotið styrk hingað til?

Upplýsingar um fyrri úthlutanir NATA má sjá á hér.

Nánari upplýsingar gefur starfsmaður NATA, Erla Weihe Johannesen – nata@vinnuframi.fo

Getum við bætt síðuna?