Fara í efni

Straumhvörf - ferðapakkakynningar

Óáþreifanleg menning og einstök upplifun fyrir gesti
Óáþreifanleg menning og einstök upplifun fyrir gesti

Straumhvörf - ferðapakkakynningar

Þann 17. janúar fór fram í Grósku viðburður í tengslum við verkefnið Straumhvörf. Straumhvörf er vöruþróunarverkefni í ferðaþjónustu sem nær yfir allt Norður- og Austurland og er ætlað fyrirtækjum í ferðaþjónustu og fulltrúum sveitarfélaga. Tilgangurinn er að nýta tækifæri sem felast í auknu millilandaflugi til Norður- og Austurlands og búa til nýjar vörur og vörupakka í ferðaþjónustu. Að verkefninu standa Austurbrú/SSA, Markaðsstofa Norðurlands, SSNV og SSNE.
Í Grósku kynntu átta ferðaþjónustuaðilar vörupakka sem eru tilbúnir til í sölu og var um að ræða mjög fjölbreytt úrval ferða, allt frá dagsferð til Hríseyjar til vikuferðar um allt svæðið. Mikill áhugi var hjá ferðaskrifstofunum sem mættu og ljóst að svæðið á mikið inni enn, sérstaklega utan háannar.

Getum við bætt síðuna?