Stormur hugmynda á Húsavík
Stormur hugmynda á Húsavík
Krubbur hugmyndahraðhlaup fór fram á Stéttinni á Húsavík dagana 20.–21. mars, þar sem þátttakendur og gestir fylltu húsið af krafti, sköpunargleði og nýjum hugmyndum.
Á tveimur dögum unnu þátttakendur að lausnum útfrá tveimur áskorunum: Betri bær fyrir börn og Opni glugginn. Samhliða fengu þeir þjálfun í nýsköpunarhugsun, leiðsögn frá reynslumiklum mentorum og stuðning við að þróa og kynna hugmyndir sínar.
Alls voru tólf hugmyndir kynntar fyrir dómnefnd í lok viðburðarins, en þar lauk ekki ferðalaginu heldur hófst næsti áfangi í að gera hugmyndirnar að veruleika.
Nýsköpunarfærni efld í byggðum landsins
Markmið Krubbs er að hvetja til frumkvæðis og hugmyndasköpunar á sama tíma og hann eflir vistkerfi nýsköpunar í heimabyggð. Þátttakendur Krubbsins fengu þjálfun í nýsköpun og frumkvöðlahugsun á 16 klst nýsköpunarnámskeiði sem leitt var af Háskólanum á Akureyri og Hraðinu. Í Krubbi árið 2025 var undirritaður samstarfssamningur milli HA og Þekkingarnetsins og er þetta námskeið afrakstur þess. Allir þátttakendur Krubbsins fengu staðfestingu á að hafa lokið því.
Verðlaunahugmyndir Krubbs
Fimm hugmyndir hlutu verðlaun að þessu sinni.
Krubbsverðlaun ársins hlutu Lara Schmitx, Julie Boesen og Antonia Assler fyrir hugmyndina Hvalahljóðaleið eða Echoes of the Deep. Í hugmynd sinni sýndu þær hvernig mætti nýta lífið neðansjávar til að auðga mannlíf ofansjávar, skapa spennandi gönguleið út frá sérkennum Húsavíkur og virkja vindinn á jákvæðan hátt. Hugmyndin gengur út á að koma upp þremur litlum áningastöðum á göngustígnum frá bænum að Sjóböðunum. Að á hverjum áningarstað verði skúlptúr byggður á hvalategund sem býr í Skjálfanda og myndar hljóð, í takt við hvalinn sem mótar hann. Vindurinn gegnir þar lykilhutverki og kallar fram óm hvalanna á náttúrulegan hátt. Teymið sem hlaut þrjú árskort í Geosea í verðlaun, hyggst nýta hverja ferð sérstaklega vel til að þróa hugmyndina áfram. Sérstaka athygli vakti hvernig hugmyndin speglar heiti hakkaþonsins með því að virkja náttúruöflin, vindinn, sem skapandi afl.
Hugmynd Silju Rúnar Reynisdóttur, Hjarta leiks og gleði!, hlaut fyrstu verðlaun sem svar við áskoruninni ,,Betri bær fyrir börn“. Hugmyndin byggir á frumgerðum sem börnin í Krakkakrubbi þróuðu í tengslum við leikvelli og var útfærð sem vistvænt leiksvæði í hjarta bæjarins í Skrúðgarðinum Húsavík. Í kynningu sinni sýndi Silja meðal annars myndir af frumgerðum barnanna og lagði sérstaka áherslu á ákall þeirra um fleiri og fjölbreyttari leiksvæði í bænum. Þá vakti Silja jafnframt athygli á uppruna Skrúðgarðsins þar sem kvenfélagskonur lögðu upp með að búa til öruggt leiksvæði fyrir börn á Húsavík. Í verðlaun hlaut Silja peningaverðlaun frá Norðurþingi, auk aðstöðu og stuðnings í Hraðinu miðstöð nýsköpunar á Húsavík í 12 mánuði.
Hvatningarverðlaun út frá áskoruninni ,,Betri bær fyrir börn“ hlaut hugmyndin Sjávarverur, sem meðlimir Björgunarsveitarinnar Garðars undir forystu Ingibjargar Benediktsdóttur stóðu að. Hugmyndin gengur út á að hanna söfnunartunnur fyrir dósir og flöskur í formi hvala. Hvalirnir eru útfærðir þannig að þeir leiki við augu íbúa og gesta Húsavíkur, byggi á staðareinkennum og ímynd bæjarins sem Hvalahöfuðborg Íslands, og jafnframt að hægt sé að klifra og leika sér á þeim. Í auga hvers hvals er gert ráð fyrir QR-kóða sem veitir fræðslu um lífríkið í Skjálfanda og áhrif plastmengunar. Í kynningunni benti teymið á tækifærið að koma söfnunartunnunum upp á höfninni, þar sem um 200.000 gestir fara um en engar tunnur eru til staðar. Útlit tunnanna er ætlað að vekja athygli, stuðla að umræðu og hvetja fólk til umhugsunar um plastmengun. Icewear veittu hvatningarverðlaunin.
Hraðið bauð þátttakendum að vinna að lausnum innan ,,Opna gluggans“, þar sem unnið var með áskoranir að eigin vali. Hugmynd Aniu Wójcik eða HÆ, var valin sem besta lausnin innan Opna gluggans. Ania vann útfrá spurningunni Hvernig getur hönnun stuðlað að aukinni vitund um hafið? Hún valdi að nýta Húsavík, hvalahöfuðborg Íslands, sem innblástur að minjagripum sem jafnframt bera með sér skilaboð til vitundarvakningar. Á 16 klukkustunda nýsköpunarnámskeiði útfærði hún þrjá minjagripi sem byggja á gildum góðrar frásagnar, menningararfi, hafinu og staðbundnum sérkennum, í stærð sem passar í tösku ferðamannsins. Verkefnið náði mjög langt í hönnunarútfærslu og er nánast tilbúið til framleiðslu. Ania hlaut peningaverðlaun sem og aðstöðu og aðstoð í Hraðinu miðstöð nýsköpunar í 12 mánuði.
Hvatningarverðlaun Hraðsins í ,,Opna glugganum“ hlaut framhaldsskólaneminn Elías Óli Tinnuson Björnsson fyrir hugmyndina ,,Plan it, þar sem plön verða að veruleika“. Plan it er svar við þeirri samfélags áskorun að einmannaleiki ungmenna hafi tvöfaldast á áratug; að ungmenni viti ekki hvað er í boði fyrir þau. Elías Óli hefur mótað hugmynd að smáforriti sem miðar að því að tengja framhaldsskólanema saman út frá viðburðum og áhugamálum, með það að markmiði að efla félagslega þátttöku og draga úr einangrun. Icewear veittu hvatningarverðlaunin.
Krubbur dregur nafn sitt af Krubbsveðri á Húsavík, stormi sem heldur fólki innandyra. Óhætt er að segja að sannkallaður stormur hafi geisað í hugum þátttakenda og að fjölmargar frábærar hugmyndir hafi hlotið vængi í honum. Þátttaka var opin öllum frá 16 ára aldri og var aldurbil þátttakenda frábært, svo þekking og reynsla ólíkra kynslóða spann spennandi vef í vistkerfi nýsköpunar á Norðurlandinu.
Krakkakrubbur
Að morgni fór fram sérstakur Krakkakrubbur í samstarfi við Borgarhólsskóla. Sjá má nánari umfjöllun hér um Krakkakrubb. Vinna krakkanna nýttist heldur betur sem innblástur í vinnu fullorðinna þátttakenda í Krubbi hugmyndahraðhlaupi. Tvær efstu lausnirnar við áskoruninni ,,Betri bær fyrir börn“ snéru einmitt að því að búa til fleiri leik- og áningarstaði fyrir börn en það voru hugmyndirnar ,,Hjarta leiks og gleði“ og ,,Sjávarverur“. Sömuleiðis fól verkefnið Sound Path/Hvalahljóðaleið í sér að þróa áningarstaði út frá leik að hljóðum og hlaut það verkefni Krubbinn 2026.
Samstarf og þakkir
SSNE og Háskólinn á Akureyri undir forystu Hraðsins, miðstöðvar nýsköpunar stóð fyrir viðburðinum með dyggri aðstoð og í samstarfi við Drift EA, Menningarfélag Akureyrar, Norðurþing, Stem Ísland, Hugmyndasmiði og GeoSea. Orkuveita Húsavíkur og Landsvirkjun styrktu Krubb hugmyndahraðhlaup, Heimamenn og Sóknaráætlun Norðurlands eystra Krakkakrubb. Markmið þessara nýsköpunarviðburða var að efla skapandi hugsun og frumkvöðlastarf sem og að útfæra lausnir að betri bæjum fyrir börn.