Fara í efni

START UP STORMUR HEFST Í HAUST

START UP STORMUR HEFST Í HAUST

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í hraðalinn STARTUP STORM - Vaxtarrými fyrir norðlenska sprota.

Startup Stormur er sjö vikna hraðall fyrir græn verkefni þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakið.

Hraðallinn er byggður upp að fyrirmynd viðskiptahraðla og er dagskrá sérhönnuð með þarfir teymanna sem taka þátt í huga og hafa þau þannig áhrif á þá fræðslu sem stendur þeim til boða.

Startup Stormur fer að mestu leyti fram á netinu en teymin hittast þrisvar sinnum meðan á hraðlinum stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi. Þátttakendur kynnast reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum, fjárfestum og stjórnendum fyrirtækja, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.

Leitast er eftir þátttakendum, þ.e. frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi sem eru komin af hugmyndastigi.

Kynningarfundur um Startup Storm fer fram 5. september nk. í gegnum netið – auglýst síðar.

Startup Stormur hefst 4. október og lýkur 16. nóvember með lokaviðburð þar sem teymin sem taka þátt halda fjárfestakynningar.

Umsóknarfrestur er til og með 21. september.

Smellið hér til að opna umsóknarformið.

Getum við bætt síðuna?