Fara í efni

Starfsfólk SSNE tók þátt í alþjóðlegri vinnustofu um atvinnuþróun og fjárfestingar

Starfsfólk SSNE tók þátt í alþjóðlegri vinnustofu um atvinnuþróun og fjárfestingar

Starfsfólk SSNE tók nýverið þátt í alþjóðlegri vinnustofu um atvinnuþróun og fjárfestingar, Regional Economic Development Seminar, sem skipulögð var af Íslandsstofu í samstarfi við ResearchFDI Academy (RDI).

ResearchFDI - FDI

Frá SSNE tóku þátt þau Anna Lind, Gunnar Már, Arnheiður og Díana, sem sátu vinnustofuna sem þátttakendur. Markmið vinnustofunnar var að efla þekkingu á aðferðum til að laða að fjárfestingar, styðja atvinnuþróun og styrkja svæðisbundna samkeppnishæfni.

Á dagskrá voru meðal annars:

  • grunnatriði atvinnuþróunar og hvernig svæði geta styrkt stöðu sína,
  • þróun og framsetning virðisframsetningar (value proposition) fyrir svæði,
  • mikilvægi skýrrar og trúverðugrar frásagnar í samskiptum við fjárfesta,
  • og nýjar leiðir til að nýta stafrænar lausnir og gögn í fjárfestingarstarfi.

Þátttaka SSNE í vinnustofunni styður við áframhaldandi þróun þekkingar og færni í fjárfestingar- og atvinnuþróunarstarfi á Norðurlandi eystra. Með slíkri þátttöku styrkist tengslanet, aukast tækifæri til samstarfs og skapast enn betri grunnur til að efla atvinnulíf og byggð á svæðinu.

Getum við bætt síðuna?