Fara í efni

Starfsfólk SSNE fundaði með starfsfólki Þingeyjarsveitar og fékk kynningu á Jarðböðunum

Starfsfólk SSNE í fundarsal Þingeyjarsveitar í dag.
Starfsfólk SSNE í fundarsal Þingeyjarsveitar í dag.

Starfsfólk SSNE fundaði með starfsfólki Þingeyjarsveitar og fékk kynningu á Jarðböðunum

Starfsfólk SSNE fundaði í dag með starfsfólki Þingeyjarsveitar í Þingey, ráðhúsi sveitarfélagsins á Laugum. Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri tók á móti hópnum. Á fundinum var starfsemi SSNE kynnt og rætt með hvaða hætti Þingeyjarsveit og starfsfólk sveitarfélagsins getur nýtt sér þjónustu og þekkingu samtakanna.

Að fundi loknum nýtti starfsfólk SSNE góða fundaraðstöðu sem byggð hefur verið upp á Laugum til sameiginlegs vinnudags. Þar var meðal annars farið yfir það sem fram undan er í starfseminni og sérstök áhersla lögð á Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra, en opnað verður fyrir umsóknir í sjóðinn síðar í þessari viku.

Í lok dags lá leiðin í Mývatnssveit þar sem starfsfólk heimsótti Jarðböðin við Mývatn og fékk kynningu umfangsmiklum framkvæmdum sem hafa farið fram þar síðasta árið.

Getum við bætt síðuna?