Starfamessa 2026
Starfamessa 2026
Fimmtudaginn 12. mars 2026 var haldin Starfamessa í Háskólanum á Akureyri, á vegum náms- og starfsráðgjafa grunnskólanna á Akureyri. Viðburðurinn sameinaði ungt fólk og atvinnulífið á einum stað og gaf nemendum einstakt tækifæri til að fá innsýn í fjölbreytt starfsval.
Alls 33 fyrirtæki og stofnanir frá svæðinu tóku þátt og settu upp kynningarbása þar sem starfsmenn kyntu til sögunnar störf sín og ræddu við nemendur um þá færni og menntun sem þarf til að starfa hjá þeim. Þátttaka fyrirtækjanna var frábær og lögðu þau öll mikinn metnað í kynningarnar.
Boðið var að nemendum í 9. og 10. bekk í grunnskólum Akureyrar og nágrennis og mættu um 800 nemendur á svæðið. Markmið viðburðarins er að hjálpa ungmennum að leggja grunninn að menntunarvali sínu í framtíðinni með því að kynna þeim sem fjölbreyttastar starfsstéttir í heimabyggð.