SSNE undirbýr málþing um innviði og öryggismál á Norðurlandi eystra
SSNE undirbýr málþing um innviði og öryggismál á Norðurlandi eystra
Haustþing SSNE 2026 sem fór fram á Dalvík í síðustu viku samþykkti að fela stjórn samtakanna að undirbúa málþing um innviði og öryggismál á Norðurlandi eystra. Markmiðið er að leiða saman sveitarfélög, stjórnvöld, stofnanir og þingnefndir til samtals um stöðu, forgangsröðun og framtíðaruppbyggingu innviða í landshlutanum.
„Öryggismál eru í brennidepli um þessar mundir, meðal annars vegna aukins óstöðugleika í alþjóðamálum og þeirra áskorana sem samfélög hafa þurft að takast á við á undanförnum árum, svo sem heimsfaraldur, náttúruvá og önnur samfélagsleg áföll. Sveitarfélögin þurfa að vera vel undirbúin og hafa skýrt hlutverk þegar slíkar aðstæður koma upp,“ segir Heimir Örn Árnason, stjórnarformaður SSNE.
Heimir segir mikilvægt að samtalið nái bæði til grunninnviða og viðbúnaðar. „Þarna viljum við leiða saman sveitarfélög, ríki og lykilstofnanir og ræða bæði hvernig við byggjum upp sterkari innviði á Norðurlandi eystra og hvernig ábyrgð og viðbrögð eiga að virka þegar reynir á.“
Lagt er upp með að málþingið verði tvískipt. Í fyrri hluta verði fjallað um uppbyggingu samgöngu-, flug- og annarra grunninnviða á Norðurlandi eystra. Vonast er eftir þátttöku meðal annars frá Vegagerðinni, Isavia, Fjarskiptastofu, Landsneti og innviðaráðuneytinu.
Í síðari hluta verður sjónum beint að öryggismálum, almannavörnum og neyðarviðbúnaði, auk samspils ríkis og sveitarfélaga þegar neyðarástand eða samfélagsleg áföll verða. Þar er gert ráð fyrir þátttöku viðeigandi ráðuneyta, lögreglunnar á Norðurlandi eystra, ríkislögreglustjóra og þjóðaröryggisráðs. Þingnefndum Alþingis sem fara með málefni innviða, samgangna, öryggismála og sveitarfélaga verður jafnframt boðið til þátttöku.
Stefnt er að því að málþingið verði haldið í byrjun árs 2027. Stjórn SSNE mun móta dagskrá þess og kalla eftir þátttöku aðila á næstu vikum. Niðurstöðunum er ætlað að nýtast sem grunnur að áframhaldandi samtali við stjórnvöld um fjárfestingar og viðbúnað í landshlutanum.