Fara í efni

SSNE tekur þátt í vinnu starfshóps um mótun borgarstefnu

SSNE tekur þátt í vinnu starfshóps um mótun borgarstefnu

Starfshópur um mótun borgarstefnu kom saman til fyrsta fundar í innviðaráðuneytinu síðastliðinn miðvikudag, 14. desember. Verkefnið er unnið samkvæmt aðgerð C.4 í Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036. Í hópnum sitja auk annarra fulltrúa Albertína F. Elíasdóttir, fyrir hönd SSNE, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, og Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúi, fyrir hönd Akureyrarbæjar.

Hlutverk hópsins er tvíþætt. Að skilgreina hlutverk Reykjavíkur sem höfuðborgar og stuðla að aukinni alþjóðlegri samkeppnishæfni höfuðborgarsvæðisins. Enn fremur að skilgreina hlutverk og uppbyggingu Akureyrar sem svæðisborgar til að hún geti boðið upp á meiri fjölbreytni í þjónustu, menningu og atvinnutækifærum.

Formaður starfshópsins er Ingvar Sverrisson, framkvæmdastjóri Aton.JL. Aðrir í starfshópnum eru Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík og Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Með hópnum starfa Ásdís Sigurbergsdóttir, ráðgjafi hjá Aton.JL, Jóhanna Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í innviðaráðuneytinu, og Reinhard Reynisson, sérfræðingur hjá Byggðastofnun.

Gert er ráð fyrir að starfshópurinn ljúki störfum eigi síðar en í árslok 2023.

Getum við bætt síðuna?