Fara í efni

Kveikjan nýtt áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra

Á myndinni eru Albertína Fr. Elíasdóttir framkvæmdastjóri SSNE og Sesselja Reynisdóttir framkvæmdast…
Á myndinni eru Albertína Fr. Elíasdóttir framkvæmdastjóri SSNE og Sesselja Reynisdóttir framkvæmdastjóri Drift EA

Kveikjan nýtt áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra

Stjórn SSNE hefur valið nýsköpunarverkefnið Kveikjuna sem eitt af áhersluverkefnum SSNE, Kveikjan hefur það að markmiði að efla nýsköpun og þróun á Norðurlandi eystra innan starfandi fyrirtækja. Verkefnið tengir saman rótgróin fyrirtæki, sprotafyrirtæki og fræðasamfélagið með það að leiðarljósi að styðja við vöruþróun, auka samkeppnishæfni og skapa verðmæt tengslanet.

Kveikjan byggir á aðferðafræði Ignite Sweden og snýst um að leysa raunverulegar áskoranir atvinnulífsins með því að virkja krafta frumkvöðla og háskólanema. Þátttakendur fá sérsniðna ráðgjöf, aðgang að öflugu nýsköpunarumhverfi og tækifæri til að vinna að þróunarverkefnum sem hafa bein áhrif á rekstur fyrirtækja.

„Með Kveikjunni viljum við skapa vettvang þar sem nýsköpun verður hluti af daglegum rekstri fyrirtækja og stuðla að langtímasamstarfi milli atvinnulífs og fræðasamfélagsins,“ segir í tilkynningu frá Drift EA.

Verkefnið er styrkt úr Sóknaráætlun Norðurlands eystra og felur í sér viðburði, þjálfun, ráðgjöf um styrkjasókn og hugverkavernd. Einnig styður það við markaðssetningu svæðisins sem spennandi valkost fyrir ungt fólk og fyrirtæki, þar sem öflugt nýsköpunarumhverfi og tækifæri til að þróast í starfi geta laðað að nýja íbúa og starfsemi.

Getum við bætt síðuna?