Fara í efni

SSNE leitar að öflugum verkefnastjóra

SSNE leitar að öflugum verkefnastjóra

Leitað er að öflugum verkefnastjóra í teymi atvinnuþróunar og nýsköpunar hjá SSNE. Um fullt starf er að ræða og gott ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni

  • Verkefnastýring stærri og minni verkefna sem tengjast verksviði SSNE.
  • Upplýsinga- og kynningarmál.
  • Stefnumótun og áætlanagerð í tengslum við sóknaráætlun.
  • Ráðgjöf, upplýsingagjöf og stuðningur við frumkvöðla.
  • Umsjón, samskipti og ráðgjöf varðandi uppbyggingarsjóð.
  • Samskipti og samstarf við hagaðila.
  • Vinna við áhersluverkefni og innviðagreiningar.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi (BA, BS, B.ed eða sambærilegt) .
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun.
  • Þekking og reynsla af upplýsinga- og kynningarmálum kostur.
  • Reynsla af ráðgjöf er kostur.
  • Góð þekking á atvinnulífi svæðisins er kostur.
  • Mikil hæfni í samskiptum og tengslamyndun.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og góð skipulagshæfni.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku.
  • Góð almenn tölvukunnátta.

Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2022

Sótt er um á www.mognum.is. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is hjá Mögnum.

Markmið með starfsemi SSNE er að efla Norðurland eystra sem eftirsótt til búsetu og atvinnu. SSNE skal vera sterkur bakhjarl aðildarsveitarfélaga í sameiginlegum málum þeirra og stuðla að góðu mannlífi, lifandi menningarlífi og öflugri atvinnustarfsemi á starfssvæðinu. Hlutverk SSNE er að þjónusta sveitarstjórnir og atvinnulíf á starfssvæði landshlutasamtakanna til að ná framangreindum markmiðum.

Starfsstöðvar SSNE eru á Akureyri, Húsavík, Raufarhöfn og í Ólafsfirði.

Getum við bætt síðuna?