Fara í efni

SSNE býður starfsfólki sínu samgöngusamning

SSNE býður starfsfólki sínu samgöngusamning

Starfsfólki SSNE býðst nú að skrifa undir samgöngusamning og vera þannig umbunað fyrir að ferðast til og frá vinnu með vistvænum hætti. Ferðalög starfsmanna eru með stærstu losunarþáttum flestra vinnustaða, þ.m.t. hjá okkur á SSNE. Það er til mikils að vinna að draga úr þeirri losun og gerð samgöngusamninga er frábært tæki til þess.

Gerð samgöngusamninganna er hluti af innleiðingu Grænna skrefa í starfsemi SSNE og fellur afar vel að anda verkefnisins þar sem markmiðið er að draga úr neikvæðum umhverfiáhrifum daglegrar starfsemi og bæta starfsumhverfið um leið.

Við gerð samgöngusamninga er mikilvægt að hafa í huga að öll erum við ólík og búum við ólíkar aðstæður; við ferðumst mislangt til vinnu og veturnir á Norðurlandi geta reynst snúnir. Sum leggja hjólunum t.a.m. yfir dimmustu mánuðina en býðst þá að skrifa undir samgöngusamninga til styttri tíma í senn, taka pásu og byrja aftur. Önnur hjóla eða ganga alla daga, allan ársins hring, og býðst þá önnur gerð samnings. Auk samgöngusamningsins er áhersla lögð á að aðstaða sé til staðar fyrir hjólandi og gangandi; hægt sé að skipta um föt ef þurfa þykir og að geyma hjól þannig að þau séu örugg meðan á vinnutíma stendur.

 Hér má finna upplýsingar og góð ráð um gerð samgöngusamninga, ef fleiri vilja fylgja í kjölfarið.

Getum við bætt síðuna?