Skrifstofur SSNE lokaðar 11. til 13. nóvember vegna fundar
Skrifstofur SSNE lokaðar 11. til 13. nóvember vegna fundar
Skrifstofur SSNE verða lokaðar dagana 11. til 13. nóvember vegna Allsherjarfundar landshlutasamtaka sveitarfélaga og Byggðastofnunar sem fram fer í Borgarnesi.
Starfsfólk landshlutasamtakanna og Byggðastofnunar kemur þar saman til að ræða stöðu og framtíð byggðaþróunar, samstarf landshlutasamtakanna og hlutverk þeirra í atvinnu- og samfélagsþróun um land allt.
Á dagskrá eru meðal annars erindi um byggðaþróun hér á landi og á Norðurlöndum, kynningar á áhugaverðum byggðaþróunarverkefnum og vinnustofur þar sem rætt verður um verkefni sem eru í gangi, framtíðaráherslur og tækifæri til aukins samstarfs milli landshluta. Starfsfólk vinnur einnig saman í hópum eftir málaflokkum, svo sem atvinnuþróun, menningu, velferð, upplýsingamiðlun og ferðamálum.
Fundurinn stendur yfir í þrjá daga og felur jafnframt í sér heimsóknir og kynningu á starfsemi og verkefnum á Vesturlandi.
Skrifstofur SSNE opna aftur mánudaginn 16. nóvember.