Fara í efni

Skrifstofa Norðurþings á Raufarhöfn innleiðir fyrsta Græna skref SSNE

Skrifstofa Norðurþings á Raufarhöfn innleiðir fyrsta Græna skref SSNE

Skrifstofa Norðurþings á Raufarhöfn er fyrsta starfsstöðin til að innleiða fyrsta Græna skref SSNE. Starfsstöðin er smá en rúmar viðamikla starfsemi þar sem Orkuveita Húsavíkur, Landsbankinn, Pósturinn og Þjóðskjalasafnið halda úti starfsemi þar, auk Norðurþings. Starfsfólkið er samtaka um að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfseminnar, með því að draga úr og flokka vel úrgang, spara orku og hita og nýta vel úr hlutunum í stað þess að skipta þeim út.

Í tilefni áfangans var slegið upp kaffiboði sem verkefnastjóri Grænna skrefa SSNE naut góðs af og starfsstöðin fékk senda tertu frá kollegum í Stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík. SSNE óskar skrifstofu Norðurþings á Raufarhöfn til hamingju með áfangann og óskar áfram góðs gengis við innleiðingu næstu skrefa. 

Getum við bætt síðuna?