Fara í efni

Skráning hafin á Loftslagsmót 2021

Skráning hafin á Loftslagsmót 2021

Loftslagsmót er vettvangur fyrir fyrirtæki sem leitast eftir eða bjóða upp á ráðgjöf og lausnir, á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við loftslagsvænni rekstur. Loftlagsmótið var fyrst haldið í mars 2020 þar sem um 230 fundir voru haldnir með yfir 90 stofnunum og fyrirtækjum.

Markmið Loftslagsmóts eru að:

  • Hvetja fyrirtæki til að kynna sér þær grænu lausnir sem eru í boði.
  • Bjóða fyrirtækjum upp á vettvang til að kynna sínar lausnir og þjónustu.
  • Stuðla að jákvæðum aðgerðum í rekstri fyrirtækja í þágu loftslagsmála.

    Dæmi um umfjöllunarefni að lausnum og/eða því sem óskað er eftir getur verið

    • ráðgjöf í tengslum við hvernig fyrirtæki geta tekið fyrstu skrefin í átt að umhverfisvænni rekstri.
    • betri aðferðir í flokkun
    • reiknivélar kolefnisspors
    • stefnumótun í umhverfis- og loftslagsmálum
    • lágmörkun úrgangs
    • rafrænt bókhald
    • kolefnisbókhald
    • umhverfisstjórnun
    • vottaðar byggingar
    • nýsköpun
    • sjálfbærar fjárfestingar

Allir sem skrá sig hafa þann kost að bóka fundi með öðrum þátttakendum á Loftslagsmótinu. Loftslagsmót 2021 leiðir saman fyrirtæki, stofnanir, frumkvöðla og aðra úr atvinnulífinu á stuttum fundum til að ræða málin og kynnast loftslagsvænum lausnum við hæfi. Eins fá fyrirtæki kost á því að eiga fundi við valda aðila úr stuðningsumhverfið sem veita ráðgjöf varðandi styrkjamöguleika, nýsköpunarþróun og vaxtamöguleika á alþjóðavettvangi.

Loftslagsmót 2021 fer fram með rafrænum hætti þann 21. apríl kl. 9-12. Nauðsynlegt er að skrá sig til að taka þátt.

Viðburðurinn er haldinn af Grænvangi, RANNÍS, Festu og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.

Nánari upplýsingar veita Birta Kristín Helgadóttir á birta@green.is og Katrín Jónsdóttir á katrin.jonsdottir@rannis.is

Skráning fer fram hér!

 

Getum við bætt síðuna?