Skráðu viðburðinn þinn á viðburðadagatal Norðurlands
Skráðu viðburðinn þinn á viðburðadagatal Norðurlands
Á Norðurlandi er fjölbreytt úrval viðburða árið um kring og mikilvægt er að upplýsingar um þá séu aðgengilegar á einum stað. Markaðsstofa Norðurlands heldur úti viðburðadagatali á vefnum Upplifðu Norðurland þar sem finna má upplýsingar um viðburði víðs vegar um landshlutann.
Viðburðahaldarar geta sjálfir skráð viðburði sína í dagatalið og þannig aukið sýnileika þeirra gagnvart bæði íbúum og gestum á Norðurlandi.
SSNE hvetur því félagasamtök, menningarstofnanir, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra viðburðahaldara til að nýta dagatalið og skrá þar viðburði sem fram fara á svæðinu.
Öflug upplýsingamiðlun um það sem er að gerast í landshlutanum styður jafnframt við markmið áhersluverkefnis SSNE um menningarbyggð á Norðurlandi eystra, þar sem áhersla er lögð á að efla menningarlíf og sýnileika menningarstarfs á svæðinu.