Fara í efni

Sjö nýsköpunarverkefni á Norðurlandi eystra hljóta styrk úr Lóunni

Sjö nýsköpunarverkefni á Norðurlandi eystra hljóta styrk úr Lóunni

 

Sjö nýsköpunarverkefni á Norðurlandi eystra hlutu samtals 24.910.000 styrk úr Lóunni, nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina. Verkefnin endurspegla fjölbreytileika og frumleika í atvinnuþróun á svæðinu og spanna ólík svið, allt frá skapandi greinum og sniglaræktunar.

Verkefnin á Norðurlandi eystra sem hlutu styrk eru:

  • Nanna Lín – Nanna Lín leðrið er frábrugðið öðru fiskleðri á þann hátt að það er endurmótað yfir í breiður áður en það er sútað. En þannig fæst leður í metravís. Leðrið er úr laxaroði og er sútað með trjáberki, en slík sútun var algeng áður en ónáttúruleg efni komu til sögunnar.
  • Skynró ehf – Skynró hefur það að markmiði að skapa heildrænar lausnir við skyntruflunum sem styðja við aukin lífsgæði, hvort sem það er í gegnum fatnað, fræðslu eða stuðning
  • GG2023 ehf – Tilgangur verkefnis er að bæta nýtingu glatvarma og landbúnaðarlands til að stuðla að auknu fæðu- og matvælaöryggi.
  • Hraðið miðstöð nýsköpunar – Hönnunarþing er hátíð nýsköpunar og hönnunar sem haldin er á Húsavik í október 2025. Áherslan í ár er nýsköpun tengd mat og sjálfbærri nýtingu.
  • Mýsköpun ehf – Verkefnið snýr að því að hvernig steinefni úr jarðhita geta stuðlað að hagkvæmnari og sérhæfðari örþörungaframleiðslu, með notkun affallsvatns jarðvarmavirkjunar sem fæði örþörunganna.
  • Með tengsl við taumin – nýstárlegt námsúrraæði þar sem börn sem glíma við skólaforðun, kvíða eða félagslega einangrun fá að taka þátt í markvissri dagskrá með hestum.
  • Eimur – Verkefnið felst í því að kynna sniglarækt sem sjálfbæra hliðarbúgrein fyrir bændur, byggða á nýtingu glatvarma úr jarðhitavatni

Að auki fékkst styrkur fyrir viðskiptahraðlinum Startup Landið sem er samstarfsvekefni allra landshlutasamtakanna og er SSNE þátttakandi í því. Viðskiptahraðallinn byrjar í haust og munu koma nánari upplýsingar á næstu dögum.

Styrkir úr Lóu eru veittir verkefnum sem eru komin af hugmyndastigi og fela í sér nýja eða verulega endurbætta vöru, þjónustu eða ferla. Markmið styrkjanna er að styðja við nýsköpun á landsbyggðinni og efla atvinnulíf með sjálfbærum og skapandi lausnum.


Nánari er hægt að lesa um úthlutina hér. 

Getum við bætt síðuna?