Fara í efni

Sex nýsköpunarteymi klára Startup Storm

Sex nýsköpunarteymi klára Startup Storm

Sex nýsköpunarteymi á Norðurlandi kláruðu nýverið viðskiptahraðalinn Startup Storm sem Norðanátt, hreyfiafl nýsköpunar á Norðurlandi, stóð að.

Startup Stormur er sjö vikna viðskiptahraðall með áherslu á sjálfbærni og græn verkefni, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakið.

Þetta er í þriðja sinn sem Norðanátt stendur fyrir viðskiptahraðli. Start up stormur hófst 4. október. Þátttakendur hafa síðastliðnar sjö vikur fengið fræðslu, setið vinnustofur og myndað tengingar við reynslumikla aðila úr atvinnulífinu á svokölluðum mentorafundum.

Ísponica – Amber Monroe

Ræktun grænmetis og kryddjurta með aquaponics (afrennsli fiskeldis) lóðréttri búskap. Markmiðið er að rækta mat innandyra, allt árið um kring með áherslu á sjálfbæra framleiðslu.

Kaffibrennsla Skagafjarðar – Vala Stefánsdóttir

Kaffibrennsla Skagafjarðar, nýbrennt og ferskara kaffi

Rækta microfarm – Serena og Giacomo

Minnkum kolefnisspor og drögum úr innflutningi og matarsóun. Rækta Microfarm er umhverfisvæn framleiðsla á grænsprettum, sælkerasveppum og hampblómum.

Sigló Sea – Laken Hives

Sjálfbær ræktun á þangi og kræklingarækt og samfélagsleg þróun ferðaþjónustu.

Vallhumall Elínborg Ásgeirsdóttir

Gamalkunn íslensk lækningajurt fær nýtt hlutverk sem bragðefni í matvælaframleiðslu.

3D Lausnir  – Jón Þór og Arnar

Hringrásasteypa og þrívíddarprentun.

 

Lokaviðburður var haldinn með pompi og prakt fimmtudaginn 16. nóvember síðastliðinn á Flugsafni Íslands. Nýsköpunarteymin stigu á stokk og kynntu verkefni sín fyrir fullum sal boðsgesta en um 80 manns sóttu viðburðinn og hlýddu á þeirra kraftmiklu kynningar. Á lokaviðburðinum var einnig fjölbreytt dagskrá, Vilhjálmur Bragason var kynnir kvöldsins og Albertína, Ottó og Katrín tóku umræðuna um nýsköpun á Norðurlandi í pallborði. Sigurjón og Ragnheiður frá englafjárfestingafélaginu Nordic Ignite fræddu gesti um englafjárfestingar og frá KLAK komu Magnús og Jenna og kynntu Gulleggið, stærstu nýsköpunarkeppni landsins.

Dómnefnd og gestir í sal fengu að kjósa um besta verkefnið og bar verkefnið 3D- lausnir sigur úr býtum og vann 500.000 kr sem mun vonandi nýtast vel í áframhaldandi þróun.

 

Norðanátt byggir á hringrás nýsköpunar þar sem frumkvöðlar fá tækifæri til að þróa hugmyndir sínar, vaxa og ná lengra. Hringrásin samanstendur af hugmyndasamkeppninni Norðansprotanum, viðskiptahraðlinum Startup Stormi Vaxtarrými og fjárfestahátíð sem haldin er á Siglufirði á vorin. Að Norðanátt standa Eimur, landshlutasamtökin SSNE og SSNV. Bakhjarl Norðanáttar er umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið.

 

www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
Getum við bætt síðuna?