Fara í efni

Samtal um græna styrki á Akureyri

Samtal um græna styrki á Akureyri

Rannís og Samband Íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við SSNE og Eim, standa fyrir opnum hádegisfundi á Akureyri þann 22. nóvember næstkomandi. Á fundinum verður fjallað um sóknartækifæri fyrir íslenska aðila í Evrópuáætlanir á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála, og þá þjónustu sem umsækjendum stendur til boða.

Þá verður einnig fjallað sérstaklega um verkefnið RECET, en það hlaut nýverið styrk úr LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. RECET er samstarfsverkefni fimm landa með Ísland í fararbroddi og eru það Íslensk nýorka og Eimur sem leiða verkefnið hér á landi með þátttöku Vestfjarðastofu og SSNE.

Þá verður einnig fjallað sérstaklega um verkefnið RECET, en það hlaut nýverið styrk úr LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. RECET er samstarfsverkefni fimm landa með Ísland í fararbroddi og eru það Íslensk nýorka og Eimur sem leiða verkefnið hér á landi með þátttöku Vestfjarðastofu og SSNE

Dagskrá:

  • Almennt um Evrópustyrki og aðkomu Íslands að þeim
  • Horizon Europe – Rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB​
  • LIFE – Umhverfis- og loftslagsáætlun ESB​
  • European City Facility – Styrkir til að útbúa fjárfestingaráætlanir fyrir sveitarfélög ​vegna orkuskipta
  • RECET – Vegferðin sem leiddi til styrks, staðan í dag og næstu skref
  • Samband íslenskra sveitarfélaga í Evrópuverkefnum – Ólíkar leiðir ​til samstarfs og þátttöku
  • Þjónusta Rannís og fyrstu skrefin í sjóðasókn ​

Upplýsingar:

  • Tími: Miðvikudagur 22. nóvember kl. 12:00 -13:00
  • Staðsetning: Borgir, Norðurslóð 4, 600 Akureyri (Herbergi: R262) (einnig streymt á Teams)
  • Vinsamlegast skráið þátttöku hér. 
Getum við bætt síðuna?