Fara í efni

Samtaka um hringrásarhagkerfið – upphafsfundur

Samtaka um hringrásarhagkerfið – upphafsfundur

Samband íslenskra sveitarfélaga efnir til upphafsfundar átaksins ,,Samtaka um hringrásarhagkerfið“ á Teams þann 16. mars nk. kl. 10:00-12:00.

Sambandið hefur með aðstoð umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytisins sett átakið á fót til að aðstoða sveitarfélög að innleiða breytingar á meðhöndlun úrgangs sem koma til framkvæmda 1. janúar 2023. Á fundinum mun umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra flytja ávarp, þá verður farið yfir helstu breytingar sem framundan eru í úrgangsstjórnun sveitarfélaga og þau stuðningsverkefni sem sveitarfélögum býðst.

Dakgskrá fundarins:

  1. Opnun, Freyr Eyjólfsson fundarstjóri.
  2. Ávarp, Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
  3. Ávarp, Aldís Hafsteinsdóttir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
  4. Breytingarnar 1. janúar 2023, Ísak Már Jóhannesson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun.
  5. Svæðisáætlanir sveitarfélaga sem verkfæri í ákvarðanatöku, Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur Environice.
  6. Handbókarvinnan og kaup í anda hringrásarhagkerfis, Bryndís Skúladóttir sérfræðingur hjá VSÓ.
  7. Borgað þegar hent er heim í hérað, Hafþór Ægir Sigurjónsson, verkefnastjóri á ráðgjafarsviði KPMG.
  8. Samræming úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu, Jón Kjartan Ágústsson svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins.
  9. Framtíðarlausn fyrir brennanlegan úrgang, Helgi Þór Ingason prófessor og verkefnisstjóri forverkefnis.
  10. Umræður
  11. Lokaorð, fundarstjóri

Skráning á fund fer fram hér

,,Samtaka um hringrásarhagkerfið“ skiptist í þrjá verkefnahluta, sem allir hafa það hlutverk að renna styrkari stoðum undir innleiðingu hringrásarhagkerfið hérlendis. Þessir verkefnahlutar eru taldir upp hér að neðan en útbúin hefur verið vefsíða um allt verkefnið hér.

Getum við bætt síðuna?