Fara í efni

Rannís heimsækir Húsavík - Tækifæri og styrkir á svæði menntunar og menningar

Upplýsandi fundur þar sem hægt er að spyrja spurninga og fá svör til að vísa leiðina.
Upplýsandi fundur þar sem hægt er að spyrja spurninga og fá svör til að vísa leiðina.

Rannís heimsækir Húsavík - Tækifæri og styrkir á svæði menntunar og menningar

Mennta- og menningarsvið Rannís býður til hádegisfundar miðvikudaginn 2. nóvember kl. 12:00-13:15. Fundurinn fer fram á Fosshótel Húsavík og verður boðið upp á gómsæta súpu í hádegismat fyrir þátttakendur. Til að áætla magn er fólk beðið um að skrá þátttöku sína hér

Markmið ráðgjafa á vegum Rannís, er að kynna tækifæri sem bjóðast innan evrópskra og norrænna styrkjaáætlana, svo sem

  • Erasmus+ áætlunar ESB fyrir öll skólastig og æskulýðsmál
  • Creative Europe kvikmynda- og menningaráætlunar ESB
  • Nordplus menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar og
  • áætlun Uppbyggingarsjóðs EES

auk þess sem fleiri leiðir til evrópsks samstarfs verða kynntar.

Við hvetjum sveitarfélög, skóla, fræðsluaðila, menningarstofnanir, æskulýðsgeirann, fyrirtæki, ungt fólk og öll sem áhuga hafa á alþjóðasamstarfi að nýta tækifærið og taka þátt. Starfsfólk Rannís verður svo til taks eftir kynningarnar fyrir þau sem vilja ræða möguleikana á evrópsku samstarfi nánar.



Getum við bætt síðuna?