Ráðstefna um framtíðina á Bakka
Ráðstefna um framtíðina á Bakka
Eimur, Norðurþing, Landsvirkjun og Íslandsstofa bjóða til ráðstefnu þar sem sjónum er beint að framtíð Bakka við Húsavík sem miðstöð sjálfbærrar atvinnuuppbyggingar.
Viðburðurinn er mikilvægur liður í að efla umræðu og samstöðu um framtíðarsýn fyrir atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi og mun m.a. varpa ljósi á:
- Hvernig orka, varmi og innviðir skapa ný tækifæri á Bakka
- Hvernig hringrásarhagkerfi getur stutt við atvinnuþróun og alþjóðlega ímynd Íslands
- Hvernig samfélagið getur tekið virkan þátt í sjálfbærri uppbyggingu
Leiðsögn kl. 10:30-12:00 um svæðið á Bakka - Rútan fer frá Fosshóteli á Húsavík.
Hádegismatur kl. 12:00 í salnum á Fosshóteli - Súpa fyrir gesti
Ráðstefna kl. 13:00 – 17:00 í salnum á Fosshóteli - Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur
- Fundarliður 1: Bakki í sókn – Tækifæri og uppbygging á grænum grunni
- Fundarliður 2: Grunnstoðir Bakka – orka, innviðir og samkeppnishæfni
- Fundarliður 3: Hvert stefnum við? – Framtíðarsýn Bakka til næstu kynslóða
Ráðstefnan er öllum opin en skráning er nauðsynleg - Skráning hér