Ráðgjafatímar Tækniþróunarsjóðs nú í boði á Teams
Ráðgjafatímar Tækniþróunarsjóðs nú í boði á Teams
Tækniþróunarsjóður býður nú upp á ráðgjafatíma á Teams fyrir einstaklinga, fyrirtæki og teymi sem hafa áhuga á að sækja um styrki úr sjóðnum.
Á sameiginlegum fundi fulltrúa landshlutasamtakanna og Tækniþróunarsjóðs fyrr á árinu var rætt um mikilvægi þess að jafna aðgengi að ráðgjöf fyrir umsækjendur um land allt. Þar var meðal annars bent á að þegar ráðgjöf er eingöngu veitt á einum stað geti skapast ójafnvægi í aðgengi umsækjenda að upplýsingum og stuðningi. Landshlutasamtökin starfa saman að atvinnuþróun og nýsköpun um allt land utan höfuðborgarsvæðisins.
Með því að bjóða upp á rafræna ráðgjafatíma á Teams geta fleiri nýtt sér þjónustuna óháð búsetu og fengið leiðsögn við undirbúning umsókna.
Við hvetjum öll sem hafa hug á að sækja um í Tækniþróunarsjóð að kynna sér þjónustuna og bóka ráðgjafatíma.