Fara í efni

Ráðgjafatímar Tækniþróunarsjóðs á Norðurlandi eystra 1.–5. september

Ráðgjafatímar Tækniþróunarsjóðs á Norðurlandi eystra 1.–5. september

Ráðgjafatímar Tækniþróunarsjóðs á Norðurlandi eystra 3.–5. september

Tækniþróunarsjóður býður upp á ráðgjafartíma á Norðurlandi eystra dagana 3.–5. september.

Sérfræðingur sjóðsins mun ferðast um svæðið og bjóða upp á viðtöl og ráðgjöf í takt við bókanir. Svæðið sem um ræðir er starfssvæði Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), frá Siglufirði að Bakkafirði.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Atla Arnarson (atli.arnarson@rannis.is) en bóka þarf tíma í síðasta lagi mánudaginn 1. september.

- - 

Dagana 1. og 2. september hafa Drift EA og Tækniþróunarsjóður tekið höndum saman og bjóða upp á viðtalstíma á Akureyri.

📍 Hvar: Í húsnæði Drift EA, Strandgötu 1
⏰ Viðtalstímar: Kl. 13:00 - 17:00
📧 Vinsamlegast bókaðu tíma með því að senda tölvupóst á: arnthor @ rannis.is


Umsóknarfrestur í Tækniþróunarsjóð er til 15. september

Getum við bætt síðuna?