Fara í efni

Opinn íbúafundur með innviðaráðherra 12. ágúst

Opinn íbúafundur með innviðaráðherra 12. ágúst

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar til íbúafunda í ágúst í öllum landshlutum til að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins. Tilgangur fundanna er að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði. Fundirnir eru opnir öllum og  hægt að skrá sig hér 

12. ágúst verður fundur á Akureyri, nánartiltekið á Múlabergi kl. 16.45. 

Samráðsfundir eru ekki eina tækifæri íbúa til að hafa áhrif á stefnumótun ráðuneytisins. Stöðumat og valkostir (þ.e. grænbók) og drög að stefnu (þ.e. hvítbók) eru birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar gefst fólki einnig tækifæri til að senda inn umsagnir og ábendingar.

Einnig er hægt að senda inn ábendingar í tengslum við þessa fundi á netfang ráðuneytisins - irn@irn.is

Getum við bætt síðuna?