Fara í efni

Opnað fyrir umsóknir í Matvælasjóð

Opnað fyrir umsóknir í Matvælasjóð

Ráðstöfunarfé sjóðsins árið 2021 eru 630 m.kr. og er umsóknarfrestur til og með 6.júní 2021.  Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.

Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. Því hefur stjórn sjóðsins ákveðið að veita styrki í 4 styrkjaflokkum Báru, Keldu, Afurð og Fjársjóð.

Ráðstöfunarfé Matvælasjóðs samanstendur af fjárveitingu af fjárlögum hverju sinni og öðrum tekjum eftir því sem þeim er til að dreifa. Allar upplýsingar um sjóðinn má finna hér á heimasíðu hans.

Umsóknareyðublöð má nálgast hér á eyðublaðavef stjórnarráðsins. 

SSNE býður upp á ráðgjöf og aðstoð vegna styrkumsóknaskrifa, m.a. í Matvælasjóð og hægt er að bóka tíma í ráðgjöf hér

 

 

Getum við bætt síðuna?